Innlent

Haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæslu

Alls voru ellefu fluttir á slysadeild eftir þriggja bíla árekstur í Víðidal
Alls voru ellefu fluttir á slysadeild eftir þriggja bíla árekstur í Víðidal
Liðlega sextugum íslenskum karlmanni er enn haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að hann lenti í þriggja bíla árekstri í Víðidal í fyrradag.

Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á deildinni er maðurinn þungt haldinn og er talinn vera í lífshættu.

Einn var útskrifaður af gjörgæslunni í gær og færður á almenna deild.

Alls voru ellefu fluttir á sjúkrahús eftir slysið - átta Ítalir og þrír Íslendingar.

Lögreglan á Blönduósi fer með rannsókn málsins en tildrög slyssins liggja ekki fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×