Erlent

Misheppnuð tilraun til flugráns

Tilraun til flugráns misheppaðist í gærkvöldi. Um var að ræða farþegavél frá tyrkneska flugfélaginu Turkish Airlines á leið frá Osló til Istanbul. 63 farþegar voru um borð.

Um klukkutíma áður en vélin átti að lenda stóð maður upp aftarlega í henni og hrópaði að hann væri með sprengju á sér. Krafðist hann þess að vélinni yrði snúið við til Osló.

Farþegum tókst að yfirbuga manninn þegar hann reyndi að brjóta sér leið inn í flugstjórnarklefann. Maðurinn talaði tyrknesku að sögn farþeganna.

Hann var handtekinn um leið og vélin lenti en reyndist ekki vera með sprengju í fórum sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×