Manndráp af gáleysi í dómi 31. janúar 2011 06:30 Atvikið átti sér stað undir Hafnarfjalli, skammt frá Borgarnesi.
Ríkissaksóknari hefur ákært tæplega sextugan karlmann fyrir manndráp af gáleysi. Hann neitaði sök við þingfestingu. Manninum er gefið að sök að hafa ekið vörubifreið með tengivagni aftan í fram úr bifreið við Hafnarfjall, án nægjanlegrar varúðar vegna aðstæðna. Hann hafi ekki gætt nægilega að hliðarbili við bifreiðina sem hann var að fara fram úr en beygt vörubifreiðinni til hægri og að hluta til í veg fyrir hana. Afleiðingar þessa urðu þær að ökumaður bifreiðarinnar varð að víkja að hluta til út á hægri vegöxl til að forðast árekstur við vörubílinn og tengivagninn. Hann missti við það stjórn á bílnum, að því er fram kemur í ákæru, svo hann fór margar veltur á veginum. Ökumaðurinn hlaut áverka á brjóstholi með fjöldamörg rifbrot, sprungu í bringubeini og blæðingu inn við lunga og heila. Hann lést þremur dögum síðar eftir legu og lyfjagjöf vegna áverkanna á sjúkrahúsi. Í málinu er gerð einkaréttarkrafa á hendur vörubílstjóranum þess efnis að hann greiði fimm milljónir króna í skaðabætur.- jss
Mest lesið Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Innlent Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Innlent Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Innlent „Hélt ég væri að fara að drepast. Þú heyrir i sprengjunni koma“ Erlent Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Innlent Kynhlutlaus klósett orðin að lögum Innlent Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum Innlent Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Innlent Orsök veikindanna enn á huldu Innlent Fleiri fréttir Á annað hundrað kvenna bíða eftir minni brjóstum Setti hraðamet í heiðurssundi fyrir syni Eddu Bjarkar Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Gripin með óhrein peningabúnt í Leifsstöð Stíga annað stórt skref að virkjun við Búrfell Óvenjulegur grafreitur reistur á Seltjarnarnesi Eyddu sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Enginn vindmyllugarður án bættra vega Orsök veikindanna enn á huldu Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum Kynhlutlaus klósett orðin að lögum Á hlaupum yfir hraunið með hræ í kjaftinum Vindorka í Dölunum og iðrakveisa á Rjúpnavöllum Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund Heilsugæslan skipuleggur sýnatökur vegna e. coli mengunar Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Þakklát fyrir þrjósku hundsins Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Svipaður hlátur á öllum upptökunum Sjá meira