Erlent

Eiginkona forseta Ísraels látin

Símon Peres forseti Ísrael
Símon Peres forseti Ísrael
Sonja Peres, eiginkona Símons Peres, forseta Ísraels, lést í morgun á heimili sínu í Tel Aviv 87 ára að aldri. Forsetinn var á heimleið frá Jerúsalem í morgun þegar hann fékk fregnir af andláti hennar.

Tengdasonur hjónanna segir að barnabarn hjónanna hafi komið að henni látinni þegar það ætlaði að heimsækja hana í morgun.

Sonja var fædd 1923 í Úkraínu og hitti Símon þegar hún fór til Ísraels og giftust þau árið 1945 og eiga þrjú börn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×