Fréttamaður barinn í Kaíró: Er því miður allt of vanur þessu 31. janúar 2011 14:55 Jón Björgvinsson eftir átökin í morgun. Hann segir erfitt að leggja mat á hvernig múgur hagar sér „
Ég kenni lögreglunni um hvernig fór. Hún bara sigaði múginum á okkur," segir Jón Björgvinsson, fréttaritari RÚV, sem varð fyrir árás æstra íbúa Kaíróborgar í morgun. Jón var þar ásamt fréttateymi að vinna efni fyrir svissneska sjónvarpið. Honum var ýtt í götuna, hann barinn og fötin hans rifiin, auk þess sem tækjabúnaður hans er ónýtur. Jón lætur þessi átök þó minna á sig fá en við mætti búast. „Ég er því miður allt of vanur þessu. Ég fann ekki fyrir miklu adrenalíni. Maður er búinn að lenda í þessu svo oft. Yfirleitt veit ég hvenær maður þarf að bakka en þarna bara vorum við aðeins of sein," segir Jón sem hefur mikla reynslu af því að kvikmynda víða um heim á átakasvæðum. „Ég á alltaf erfiðast með að meta hvernig múgur hagar sér. Annað hvort fer hann að faðma okkur að sér eða bókstaflega hrækir á okkur. Ef stefnir í það seinna reynir maður að forða sér sem fyrst," segir Jón. Lögregla og hermenn eru mun útreiknanlegri hópur að mati Jóns. Þó telur hann að viðbrögð múgsins í þetta skiptið hafi verið vegna þess að lögreglumenn æstu hann upp gegn fréttamönnunum.Rassía á Hilton Jón var kominn aftur á hótelið þegar fréttastofa náði tali af honum. „Hermenn voru að gera rassíu hérna á Hilton rétt áðan. Þeir tóku öll tækin af fréttamönnum Al Jazeera. Það er víða búið að taka tæki og spólur af fréttamönnum. Þetta eru einhvers konar hræðsluaðgerðir. Stundum gefa þeir manni aðvörun og þá hefur maður tækifæri til að koma sér í burtu. Annars á maður von á að vera handtekinn í einn, tvo klukkutíma," segir Jón. Umfjöllun fjölmiðla í aðdraganda mótmælanna í Kaíró er talin hafa æst upp hluta mótmælendanna en sem kunnugt er lokuðu ákveðin netfyrirtæki á samskipti Egypta við umheiminn. „Auðvitað eiga fjölmiðlar mikinn þátt í því ástandi sem hér er," segir Jón. Hann er aðeins nýkominn til Kaíró en þar til á laugardag var Jón að mynda á leiðtogafundinum í Davos í Sviss. Fréttateyminu var ráðlagt að halda sig á hótelinu það sem eftir lifir dags og mun það hlýta þeim tilmælum. Lögreglan hvarf af götunum Ástæðan fyrir því að teymið var statt í þessum hluta borgarinnar í morgun var einmitt sú að ætlunin var að ná myndum af fólki sem væri ekki í hringiðu mótmælanna. Jón segir að þegar lögreglan hafi bókstaflega horfið af götunum í tvo daga þegar mótmælin stóðu sem hæst. Nú eru lögreglumennirnir hins vegar komnir aftur á göturnar og þarna hafi þeir beinlínis hvatt óupplýstan múginn til að ráðast að fréttamönnunum. Hann segir að íbúarnir hafi veirð farnir að hrópa að egypskri konu sem starfar í fréttahópnum að hún væri föðurlandssvikari því hún starfaði með erlendum fréttamönnum. Eftir að meðlimum hópsins var ýtt í götuna og þeir barðir komu síðan aðrir íbúar þeim til hjálpar þannig að ekki urðu alvarleg slys á fólki.
Mest lesið Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent „Hélt ég væri að fara að drepast. Þú heyrir i sprengjunni koma“ Erlent Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Innlent Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Innlent Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Innlent „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Innlent Handtökuskipun gefin út vegna Nord Stream skemmdarverkanna Erlent Milla hætt hjá Willum Innlent Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund Innlent Hamas segjast ekki munu senda fulltrúa til viðræðna á morgun Erlent Fleiri fréttir Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund Heilsugæslan skipuleggur sýnatökur vegna e. coli mengunar Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Þakklát fyrir þrjósku hundsins Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Svipaður hlátur á öllum upptökunum Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Bruni í miðbænum og Landvernd slæst við vindmyllur Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Sjá meira