Erlent

Átta létust í flóði í Ástralíu

Frá bænum Toowoomba í Ástralíu í gær. Mynd/AP
Frá bænum Toowoomba í Ástralíu í gær. Mynd/AP Mynd/AP

Að minnsta kosti átta létu lífið þegar skyndilegt flóð skall á bænum Toowoomba í Ástralíu í gær. Ellefu til viðbótar er saknað. Vatnsflaumurinn var svo sterkur að hann sópaði með sér bílum um götur bæjarins.

Björgunarmenn unnu mörg afrek við að bjarga fólki.

Mestu flóð í 50 ár hafa hrjáð Ástrala undanfarna daga. Flóðasvæðið hefur verið stærra en Frakkland og Þýskaland saman­lagt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×