Erlent

Dálítið spennandi lending

Óli Tynes skrifar
Það var ausandi rigning og lítið skyggni þegar tveggja hreyfla Fokker 100 farþegaþota frá Mexíkó kom inn til lendingar í Havana á Kúbu í jólamánuðinum. Rauði liturinn á ratsjánni sýnir að hún er að fljúga inn í eldingaveður.

Og eins og sjá má egar vélin nálgast flugbrautina er hún hulin þoku og ausandi rigningu, og aðeins aðflugsljósin á brautarendanum sýnileg. En það dugði flugmönnunum til þess að lenda örugglega. Við skulum fylgjast með því.....




Fleiri fréttir

Sjá meira


×