Innlent

Agnes og Ingi semja um sátt

Agnes Bragadóttir
Agnes Bragadóttir

Ingi F. Viljálmsson, fréttastjóri DV, hefur fallið frá meiðyrðamáli á hendur Agnesi Bragadóttur, blaðamanni á Morgun­blaðinu, sem hann höfðaði vegna umfjöllunar um meintan þátt sinn í sakamálum sem til rannsóknar eru.

Agnes og Morgunblaðið gerðu sátt við Inga sem meðal annars felur í sér að Morgunblaðið biðst afsökunar á fréttaflutningi sínum á afdráttarlausari hátt en fram til þessa.

Afsökunarbeiðni Morgunblaðsins er auglýst á heilsíðum í þremur dagblöðum í dag: Fréttablaðinu, DV og Fréttatímanum. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður Inga, vildi ekki tjá sig frekar um það í gær í hverju sáttin fælist og bar við trúnaði. - sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×