Erlent

Skilnaðurinn reynist Christinu Aguileru dýr

Jordan og Christina eiga soninn Max saman.
Jordan og Christina eiga soninn Max saman. Mynd/AP
Poppdívan Christina Aguilera og dansarinn Jordan Bratman hafa komist að samkomulagi varðandi skilnað þeirra. Staðið hefur styrr um hvað Jordan fengi í sinn hlut en nú liggur fyrir að hann muni fá helming af eignum söngkonunnar. Þau gerðu ekki með sér kaupmála þegar þau gengu í hjónaband fyrir fimm árum.

Jordan og Christina eiga soninn Max saman. Skömmu eftir skilnaðinn var Christina kominn með nýjan mann upp á arminn. Matt Rutler heitir hann en þau kynntust við tökur á kvikmyndinni Burlesque, þar sem Matt vann sem aðstoðarmaður sviðsmanns.

Jordan og Christina hafa deilt harkalega um skiptingu fasteigna og fjármuna og neitaði Jordan til að mynda að flytja út úr 11,5 milljón dollara húsi þeirra. Þau munu deila forræði yfir Max sem er þriggja ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×