Erlent

Stal öllu steini léttara

Óli Tynes skrifar

Þegar danskir lögreglumenn stöðvuðu bíl í Hróarskeldu vegna þess að það vantaði á hann aðra númeraplötuna fannst þeim konan sem ók honum eitthvað taugastrekkt. Hún hafði ástæðu til. Hún hafði stolið bílnum. Og ekki nóg með það í skotti hans fannst þýfi að verðmæti um hálf milljón íslenskra króna. Og ekki nóg með það, á heimili hennar fannst þýfi að verðmæti um fimmtán milljónir króna. Það þurfti tíu pallettur til að flytja það allt á brott.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×