Erlent

Krókódílar sleppa lausir nálægt sólarströnd

Ferðamenn á sólarströndinni Pattaya í Tælandi geta átt von á mjög ógnvekjandi vegfarendum við næsta götuhorn.
Ferðamenn á sólarströndinni Pattaya í Tælandi geta átt von á mjög ógnvekjandi vegfarendum við næsta götuhorn.
Eftir mikil flóð í Tælandi síðustu daga sluppu nokkrir krókódílar af sýningarsvæði á einni vinsælustu sólbaðsströnd Tælendinga, Pattaya. Þeirra er nú leitað í örvæntingu.

Yfir 2000 krókódílar voru á geymdir á svæðinu. Þeir voru notaðir í sýningar á hverjum degi og mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Á sunnudaginn slapp fjöldi þeirra út af svæðinu í kjölfar mikilla rigninga. Í dag hafði eigendum búgarðsins tekist að handsama 28 krókódíla. Ekki er vitað hve margir eru enn týndir.

Krókódílarnir eru á bilinu 2 til 4 metrar á lengd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×