Innlent

Nemar í loðnuvinnslu í aðdraganda verkfalls

MYND/Hari

Nokkrir nemendur í Framhaldsskóla Vestmannaeyja fá þessa dagana frí úr skólanum til þess að vinna við loðnufrystingu á vöktum.

Sverrir Albertsson, formaður Afls - starfsgreinafélags Austurlands, segist vita að löng hefð sé fyrir skólafríi á vertíðum víða á landsbyggðinni og að hann gagnrýni það ekki sérstaklega. Hins vegar séu aðstæður nú sérstakar og áhrif af verkfallsboðun í loðnubræðslum séu þarna að koma fram.

„Menn eru að veiða loðnuna í verðminni afurð en annars hefði verið gert," segir Sverrir. „Verðmætasti tíminn er fram undan."

Þar vísar hann til þess að venjulega hefði verið beðið eftir meiri hrognafyllingu loðnunnar áður en kraftur væri settur í veiðar og vinnslu. Heilfrysting á loðnu hófst í Eyjum á sunnudag og er unnið á sólarhringsvöktum. Verkfall er boðað í nær öllum loðnubræðslum landsins frá þriðjudagskvöldi.

„Okkur finnst skjóta skökku við að það skuli vera gefin sérstök frí úr framhaldsskólum til að minnka áhrifin af okkar verkfalli og þann þrýsting sem er í okkar samningamálum," segir Sverrir.

Ólafur H. Sigurjónsson, skólameistari Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum, hafnar því að fríin tengist verkfallsboðun á einhvern hátt. „Það er margra áratuga hefð fyrir því í Vestmannaeyjum að nemendur hjálpi til þegar eru tarnir í fiskvinnslunni," segir hann.

Eins og áður fái Framhaldsskólinn sendan lista frá Vinnslustöðinni með nöfnum nemenda sem fyrirtækið vilji ráða á vaktirnar. Skólastjórnendur fara yfir listann og þurfa að samþykkja ráðninguna og gefa sex til tíu leyfi til að vinna á hverri átta tíma vakt hjá Vinnslustöðinni: „Þeir nemendur sem best mæta í skólann sitja fyrir," segir Ólafur.

„Það hefur ekki skaðað þeirra námsárangur að gera þetta." Vegna þess hve skammt er til verkfalls segir hann að færri nemendur fái frí vegna þess en í venjulegu ári. Búast megi við að hver nemandi nái að vinna þrjár til fjórar vaktir. - pg








Fleiri fréttir

Sjá meira


×