Innlent

Verkefni Ridley Scott lyftistöng fyrir kvikmyndaiðnaðinn

Líkur eru á að Hollywood leikstjórinn Ridley Scott taki upp tvær kvikmyndir hér á landi á árinu. Þá er vinna við hollenska mynd sem tekin verður upp hér í þrívídd hafin. Þessi þrjú verkefni gætu skilað milljörðum í þjóðarbúið.

Önnur mynda Ridley Scott mun fjalla um leiðtogafundinn í Höfða. Fréttablaðið greinir frá því að samningar tókust milli Ridley Scott og Headline Pictures nú á kvikmyndahátíðinni í Cannes um að hann muni leikstýra myndina.

En myndin um fundinn í Höfða er ekki eina verkefnið sem Ridley Scott leggur drög að hér á landi. Fyrir nokkru skoðaði hann tökustaði fyrir nýja kvikmynd sem ber nafnið Promotheus. Samkvæmt erlendum vefmiðlum er myndin forleikur að hinni frægu Alien seríu en fyrsta Alien myndin, sem Ridley Scott leikstýrði, skaut honum upp á stjörnuhiminn.

Auk þessa verkefni er nú vinna fyrstu hollensku þrívíddarmyndina Nova Zembla sem meðal annars verður tekin upp á Langjökli. Þessi verkefni gætu skilað milljörðum inn í þjóðarbúið og verið lyftistöng fyrir kvikmyndaiðnaðinn.

„Þetta merkir að við erum að fá töluvert mikið af erlendum tekjum inn til landsins. Ég tala ekki um þegar stórar bíómyndir koma þá kemur töluverð viðbót sem annars færi til annars lands. Við getum litið á þetta sem hreinan hagnað og plús fyrir þjóðarbúið," segir Helga María Reykdal, framkvæmdastjóri True North.

Helga Margrét segir árið 2011 hafa farið vel af stað. True North er nú í samvinnu við Ridley Scott vegna verkefna hans. „Ég get ekki tjáð mig um okkar erlendu gesti en þó sagt að þeim líður vel hérna," segir Helga Margrét aðspurð um samskiptin við Ridley Scott.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×