Innlent

Jólagjöfin í ár spjaldtölva - sambýliskona eiganda Epli.is í dómnefnd

Höddd Vilhjálmsdóttir skrifar
Jólagjöfin í ár verður spjaldtölva. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu Rannsóknarseturs verslunarinnar um jólaverslunina, en sérstök jólagjafanefnd sér um að velja jólagjöf ársins.

Jólagjöf ársins 2009 var jákvæð upplifun og fyrir jólin 2010 var það svo íslenska lopapeysan sem hreppti hnossið. Í ár er hvorki meira né minna spjaldtölvan jólagjöf ársins. Maður getur því ekki annað en velt fyrir sér hvort að kreppan sé búin og maður megi eiga von á Audi jeppa jólin 2012.

Það er kannski möguleiki á því ef að sjálfur forstjóri Heklu eða spúsa hans verður í jólagjafadómnefnd rannsóknarsetursins á næsta ári. Það stingur nefnilega svolítið í stúf að árið tvöþúsund og átta var íslensk hönnun valin jólagjöf ársins en fyrr á því herrans ári var ein úr dómnefnd ráðin sem framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands.

Eins og fyrr segir er það svo spjaldtölvan sem er jólagjöf ársins þessi jólin og getur það komið sér ágætlega fyrir aðra konu úr dómnefndinni en hún er sambýliskona eiganda og framkvæmdastjóra Epli.is sem er umboðsaðili á Íslandi og eins og sést í skýrslu rannsóknarsetursins er einungis mynd af einni týpu af spjaldtölvu - Ipad spjaldtölvu Apple. Þess má geta að allraódýrasta útgáfa af Ipad kostar 84.990 kr.

Hvort sem þetta eru einungis tilviljanir eða ekki fer enginn varhluta af því að spjaldtölvur eru mjög vinsælar í dag og geta kostað allt niður í 19.900 krónur.

Þegar fréttastofa náði tali af Emil B. Karlssyni forstöðumanni Rannsóknarseturs verslunarinnar sagði hann að hann hefði ekki haft hugmynd um það að einn aðila væri í sambúð með eiganda og framkvæmdastjóra umboðsaðila Apple á Íslandi.

Hann segir löggilt smekkfólk, tískulöggur og neytendafrömuði vera í dómnefnd og að mörgum hugmyndum af jólagjöf ársins hefði verið kastað fram en að spjaldtalvan hefði verið lokaniðurstaðan.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×