Vill að þingmenn fái aðgang að skýrslu um Búsáhaldabyltinguna Jón Hákon Halldórsson skrifar 10. október 2012 13:35 Átökin við þinghúsið voru gríðarlega hörð. mynd/ Valli.
Þingmenn ættu að fá aðgang að skýrslu sem Geir Jón Þórisson, fyrrverandi yfirlögregluþjónn, vann um Búsáhaldabyltinguna. Þetta segir Sigurður Ingi Jóhannsson, einn af varaforsetum Alþingis, í samtali við Vísi. Hann bar málið upp í forsætisnefnd Alþingis á síðasta fundi nefndarinnar. Geir Jón sagði í fjölmiðlum fyrr á árinu, þegar hann ræddi skýrsluna, að búsáhaldarbyltingunni hafi verið stýrt af sitjandi þingmönnum. Sigurður Ingi bendir á að upplýsingadeild Alþingis hafi verið falið að afla umræddrar skýrslu, en því var hafnað á þeirri forsendu að um væri að ræða innanhúsplagg lögreglunnar. „Mér finnst mikilvægt að Alþingi fái möguleika til þess að skoða þessa skýrslu þar sem þetta varðar öryggismál þingsins ekkert síður en innanbúðarmál í lögreglunni," segir Sigurður Ingi í samtali við Vísi. Hann segist hafa lagt fram beiðni á síðasta fundi forsætisnefndar, um að kallað yrði eftir skýrslunni að nýju. Ekki hafi mikil umræða farið fram um það með hvaða hætti yrði kallað eftir skýrslunni, en Sigurður Ingi á von á frekari umræðu á næstu fundum forsætisnefndarinnar. Sigurður Ingi vill lítið tjá sig um þau orð Geirs Jóns að alþingismenn hafi stýrt Búsáhaldabyltingunni. „Nú veit ég ekkert hvað stendur í skýrslunni en mér finnst mikilvægt að Slþingi fái tækifæri til að sjá skýrsluna og vega og meta sín öryggismál," segir hann.
Mest lesið Neyðarþyrluflug með ferðamann á Jökulfjörðum „vísir að misnotkun“ Innlent Lýsa yfir hættustigi Innlent Loftefni hrundi í húsi sem fæst ekki uppkeypt Innlent Skákar Trump í skoðanakönnun Erlent Féllu ofan í jökullón Sólheimajökuls Innlent Hraunflæði það hratt að ekki yrði hlaupið undan því Innlent Siggi Kristins gítarleikari og bílaspekúlant er allur Innlent Myndband sýnir aðdraganda árásarinnar á Krít Innlent Færa börnin eftir að skemmdir í leikskólanum komu í ljós Innlent Sagði Harris vanhæfa sökum barnleysis Erlent Fleiri fréttir „Okkur þykir mjög miður að þetta hafi gerst“ Öllu gríni fylgi alvara Um 100 manns frá Eþíópíu búa á Íslandi Lögreglubíll og pallbíll sennilega ónýtir eftir harðan árekstur Hættustig almannavarna og sögulegt ávarp Netanjahú Loftefni hrundi í húsi sem fæst ekki uppkeypt Reiðhjólamaður féll af kletti við Jökulsárgljúfur Færa börnin eftir að skemmdir í leikskólanum komu í ljós Þórarinn selur ekki sinn hlut í Búsæld Neyðarþyrluflug með ferðamann á Jökulfjörðum „vísir að misnotkun“ Þrettán vilja stýra ráðuneyti Svandísar Myndband sýnir aðdraganda árásarinnar á Krít Halla heimsótti Guðna Féllu ofan í jökullón Sólheimajökuls Lýsa yfir hættustigi Söngskólinn í Reykjavík leitar nýs húsnæðis Viðvarandi vætutíð og áfram rigning í kortunum „Auðvitað mjög margir sem eru óttaslegnir“ Arnar Þór íhugar að stofna stjórnmálaflokk Verðbólga eykst og áfram rigning í kortunum Kæra vararíkissaksóknara vegna ummæla um innflytjendur Siggi Kristins gítarleikari og bílaspekúlant er allur Hraunflæði það hratt að ekki yrði hlaupið undan því Erfðabreytileikar hafa áhrif á DNA metýleringu Segir tímabært að Ísland stokki spilin upp á nýtt Leiðindi í lyfjaverslun og æsingur í miðborginni Fráleitt að vernda glæpamenn frá eigin nafni Ekki æskilegt að hafa fólk í bænum Röng skilaboð að Yaris borgi það sama og stór jeppi Man ekki eftir öðru eins í sinni búskapartíð Sjá meira