Gerrard: Liverpool getur enn náð fjórða sætinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. mars 2012 22:45 Steven Gerrard. Mynd/Nordic Photos/Getty
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, heldur enn í vonina um að Liverpool geti náð fjórða sætinu í ensku úrvalsdeildinni og þar með sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili þrátt fyrir að Liverpool sé tíu stigum á eftir Arsenal. „Við verðum að vinna eins marga leiki og við getum og sjá síðan hvert það skilar okkur. Við munum ekki gefa upp vonina um að að komast í Meistaradeildina fyrr en að við ekki lengur tölfræðilega möguleika á því," sagði Steven Gerrard. „Það er einhverjir að tala um heppni og að hlutirnir séu ekki að falla með okkur. Við verðum að taka sjálfir ábyrgðina á því að koma boltanum í markið og við gerðum það á móti Everton," sagði Steven Gerrard sem skoraði öll þrjú mörk Liverpool í umræddum 3-0 sigri á Everton. „Við höfum verið að spila vel og liðið og hópurinn er á réttri leið. En á meðan að við komum boltanum ekki í markið hjá mótherjunum þá verður við ekki ofar en sjötta eða sjöunda sæti og það er eitthvað sem við viljum ekki," sagði Gerrard. „Það er gaman að skora þrennu en ég er ekki á eftir persónulegum markmiðum. Það sem er mikilvægt fyrir mig er að komast ofar í deildinni og halda áfram leið okkar á Wembley í ensku bikarkeppninni," sagði Gerrard. Liverpool fær tækifæri til að fylgja á eftir sigrinum á Everton þegar liðið mætir Stoke í átta liða úrslitum enska bikarsins um helgina. „Þetta er stór leikur fyrir okkur og við verðum að líta á þennan leik eins og um bikarúrslitaleik væri að ræða. Við verðum að ná góðum leik ef við ætlum að komast aftur á Wembley. Það væri mikið afrek að komast tvisvar á wembley á þessu tímabili," sagði Gerrard.
Mest lesið Beckham: Hvernig voga þeir sér að segja þetta um Viktoríu mína Fótbolti Hrædd vegna ástandsins og þorði ekki í landsleikina Fótbolti Salah skrifar undir tveggja ára samning við Liverpool Enski boltinn Markvörðurinn skoraði með hjólhestaspyrnu á síðustu stundu Enski boltinn Bjarki gerði allt brjálað á Skaganum með því að kyssa KR-merkið Íslenski boltinn Leikmenn sem gætu blómstrað á nýjum stað Íslenski boltinn „Stöð 2 Sport er enski boltinn“ Enski boltinn Sorg og óvissa en ljós við enda ganganna Íslenski boltinn Cantona telur Ratcliffe vera að eyðileggja Manchester United Enski boltinn „Þungu fargi létt eftir afar tilfinningaþrungna viku“ Handbolti Fleiri fréttir „Stöð 2 Sport er enski boltinn“ Cantona telur Ratcliffe vera að eyðileggja Manchester United Salah skrifar undir tveggja ára samning við Liverpool Markvörðurinn skoraði með hjólhestaspyrnu á síðustu stundu Svona verður enski boltinn á Stöð 2 Sport Arnar spilaði með besta „pöbbaliði“ Bretlands Salah nálgast nýjan samning Klopp mætir aftur til Liverpool í næsta mánuði England öruggt með fimm sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili Brady óskaði Willum, Alfonsi og félögum til hamingju Íslendingalið Birmingham upp í B-deild Sjáðu hitt rauða spjaldið sem Gylfi hefur fengið á ferlinum Settu met sem enginn vill eiga Of ungur til að auglýsa veðmál Newcastle heldur áfram að klífa töfluna Sóknarlína Chelsea veldur áhyggjum Van Dijk tjáir sig um samningaviðræðurnar Rekinn sem slakasti stjóri í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Neville hélt þrumuræðu um vélmennaboltann sem er að eyðileggja leikinn Guardiola hneykslaður á söngvum um móður Fodens „Ég horfði á leikinn og sparkaði tebollanum í gólfið“ Ekkert mark í grannaslagnum Chelsea tapaði stigum í markalausum Lundúnaslag Tottenham sendi Southampton niður í b-deildina Fyrsta deildartap Liverpool síðan í september „Ég er 100% pirraður“ Mikið breytt lið Villa vann mikilvægan sigur Ekki góður dagur fyrir Meistaradeildardrauma Brighton og Bournemouth Enskir fjölmiðlar segja Chelsea hafa brotið reglur UEFA Everton gerði grönnunum greiða með því að taka stig af Arsenal Sjá meira