Erlent

Konunglegi erfinginn kominn á Twitter

„Þessi mynd sannar að þetta sé ég,“ sagði konunglegi erfinginn á Twitter í dag. Þessi mynd á að vera sjálfsmynd. Góður húmor, svo ekki sé meira sagt.
„Þessi mynd sannar að þetta sé ég,“ sagði konunglegi erfinginn á Twitter í dag. Þessi mynd á að vera sjálfsmynd. Góður húmor, svo ekki sé meira sagt.
Það hefur varla farið framhjá neinum að Kate Middleton er ófrísk en breska konungshirðin staðfesti þetta í dag. Nokkrum mínútum eftir tilkynninguna var einhver sniðugur Twitter-notandi sem notaði tækifærið og bjó til reikning sem heitir einfaldlega, @IamRoyalBaby, eða @Égerhinnkonunglegihvítvoðungur.

Notandinn er nú þegar kominn með yfir þrjú þúsund fylgjendur á Twitter. Fyrsta færslan var á þessa leið: „Hæ allir, þetta er ég" Stuttu síðar kom færslan sem hljómaði svona: „Ég get staðfest það að ég er ekki rauðhærð/ur", sem var endursent (e.retweet) yfir 400 sinnum á innan við tuttugu mínútum.

Hægt er að skoða færslu nýja erfingjan á Twitter, hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×