Innlent

Game of Thrones snýr aftur 1. apríl

Sjónvarpsstöðin HBO tilkynnti í dag að önnur sería af sjónvarpsþættinum vinsæla Game of Thrones verði frumsýnd 1. apríl næstkomandi.

Líkt og í fyrri þáttaröðinni verða 10 þættir í þeirri nýju. Hluti seríunnar var tekin upp á Íslandi en þær senur tengjast sögu Næturvarðanna.

Þáttaröðin er byggð á bókinni A Clash of Kings eftir George R. R. Martin en hún er önnur bókin í sagnaröðinni A Song of Fire and Ice.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×