Körfubolti

Þjóðverjar unnu Tony Parker og félaga

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tony Parker í leiknum í kvöld.
Tony Parker í leiknum í kvöld. mYnd / Getty images
Það var nóg um að vera á Evrópumótinu í körfubolta í dag sem fram fer þessa daganna í Slóveníu.

Evrópumeistarar Spánverja unnu auðveldan sigur á Króötum í fyrstu umferð riðlakeppninnar en leikurinn fór 68-40. Varnarleikur Spánverjar var frábær og náðu Króatar aðeins að skora þrjú stiga í lokaleikhlutanum.

Svartfjallaland vann Makedóníu 81-80 í miklum spennuleik en Svarfellingar náðu að tryggja sér sigurinn undir lok leiksins.

Úkraína vann fínan sigur á Belgíu 58-57 í stigalitlum leik en jafnframt spennandi.

Svíar töpuðu illa fyrir Grikkjum 79-51 og áttu aldrei möguleika í leiknum.

Mögnuð úrslit voru nú undir kvöld er Þjóðverjar unnu frábæran sigur á Frökkum 80-74 en stórstjarnan Tony Parker var í liði Frakka en hann gerði 18 stig fyrir Frakka í leiknum og var atkvæðamestur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×