Enn jafnar Gylfi í 2-2 Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. apríl 2013 09:36
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði dýrmætt jöfnunarmark fyrir Tottenham í 2-2 jafntefli liðsins gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Annan leikinn í röð kom Gylfi hvítklæddum liðsfélögum sínum til bjargar með jöfnunarmarki. Hann skoraði glæsilegt mark og jafnaði metin í Evrópudeildinni gegn Basel á White Hart Lane á fimmtudagskvöldið. Hann var svo réttur maður á réttum stað gegn Everton í gær eftir að skot Emmanuel Adebayor small í stönginni. Þetta var annað mark Gylfa Þórs í ensku úrvalsdeildinni. Hann kom inná sem varamaður og skoraði í 3-2 útisigri gegn West Ham í lok febrúar. Þá jafnaði Gylfi einmitt metin í 2-2. Á svipaðan hátt og gegn Everton í gær var Gylfi með markanefið á lofti á fjærstönginni og skoraði auðvelt mark. Gylfi hefur því þrívegis skorað mikilvægt mark og jafnaði metin í 2-2 á tímabilinu. Auk þess hefur Gylfi skorað eitt mark í deildabikarnum og tvívegis til viðbótar í Evrópudeildinni. Það er vonandi fyrir Tottenham að Gylfi haldi uppteknum hætti á fimmtudaginn þegar liðið sækir Basel heim. Liðið verður líklega án Gareth Bale og Aaron Lennon í leiknum. Mörkin úr jafntefli Spurs og Everton má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Mest lesið Hrædd vegna ástandsins og þorði ekki í landsleikina Fótbolti „Þungu fargi létt eftir afar tilfinningaþrungna viku“ Handbolti Vilja reka liðsfélaga Rúnars Alex úr landi Fótbolti „Alsæl með að skilja við liðið á leiðinni á HM“ Handbolti Svona verður enski boltinn á Stöð 2 Sport Enski boltinn „Þeir spila mjög fast og komast upp með það“ Körfubolti Rose með þriggja högga forystu á Mastersmótinu Golf „Hann er langbesti varnarmaðurinn í þessari deild“ Körfubolti Uppgjörið: Valur-Grindavík 75-86 | Grindvíkingar í lykilstöðu Körfubolti Uppgjörið: Ísrael - Ísland 21-31 | Íslenska liðið á leið á sitt þriðja stórmót í röð Handbolti Fleiri fréttir Svona verður enski boltinn á Stöð 2 Sport Arnar spilaði með besta „pöbbaliði“ Bretlands Salah nálgast nýjan samning Klopp mætir aftur til Liverpool í næsta mánuði England öruggt með fimm sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili Brady óskaði Willum, Alfonsi og félögum til hamingju Íslendingalið Birmingham upp í B-deild Sjáðu hitt rauða spjaldið sem Gylfi hefur fengið á ferlinum Settu met sem enginn vill eiga Of ungur til að auglýsa veðmál Newcastle heldur áfram að klífa töfluna Sóknarlína Chelsea veldur áhyggjum Van Dijk tjáir sig um samningaviðræðurnar Rekinn sem slakasti stjóri í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Neville hélt þrumuræðu um vélmennaboltann sem er að eyðileggja leikinn Guardiola hneykslaður á söngvum um móður Fodens „Ég horfði á leikinn og sparkaði tebollanum í gólfið“ Ekkert mark í grannaslagnum Chelsea tapaði stigum í markalausum Lundúnaslag Tottenham sendi Southampton niður í b-deildina Fyrsta deildartap Liverpool síðan í september „Ég er 100% pirraður“ Mikið breytt lið Villa vann mikilvægan sigur Ekki góður dagur fyrir Meistaradeildardrauma Brighton og Bournemouth Enskir fjölmiðlar segja Chelsea hafa brotið reglur UEFA Everton gerði grönnunum greiða með því að taka stig af Arsenal Amorim: Klikkun að halda að Man United geti unnið ensku úrvalsdeildina „Sorgardagur fyrir Manchester City“ Bruno bestur í mars Fordæma morðhótanir sem Tarkowski hafa borist Sjá meira