Innlent

Már tapaði baráttunni um laun sín í Hæstarétti

Hæstiréttur staðfesti í dag niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Más Guðmundssonar seðlabankastjóra gegn Seðlabankanum.

Már stefndi Seðlabankanum eftir að hann tók við stöðu seðlabankastjóra haustið 2009. Ástæðan er sú að í sama mánuði og Már tók við bankastjórastöðunni var lögum um kjararáð, sem seðlabankastjóri heyrir undir, breytt. Launin voru lækkuð og inn í lögin var tekið ákvæði um að laun embættismanna yrðu ekki hærri en laun forsætisráðherra.

Már segist aftur á móti hafa kynnt sér starfskjör áður en hann sótti um og að lögum um kjararáð hafi verið breytt eftir að gengið var frá ráðningu hans. Hann krafðist því leiðréttingar. Hann stefndi Seðlabankanum fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur en dómur féll Seðlabankanum í vil. Hann áfrýjaði þeim dómi til Hæstaréttar sem staðfesti niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur eins og fyrr segir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×