Tveggja daga gömlu barni bjargað úr skólpröri Hrund Þórsdóttir skrifar 28. maí 2013 20:40
Tveggja daga gömlu barni var um helgina bjargað úr skólpröri í fjölbýlishúsi í Kína. Kínverskir fjölmiðlar greindu frá þessu í gær. Hin ótrúlega björgun átti sér stað eftir að íbúar urðu varir við barnsgrát og við nánari skoðun sást glitta í agnarsmáan fót í skólpröri rétt fyrir neðan klósettið. Flestir telja að barninu hafi verið sturtað niður en einhverjir halda því fram að móðir barnsins hafi leynt því að hún væri ólétt og fætt barnið óvænt þegar hún var á klósettinu. Ekki reyndist unnt að bjarga barninu á staðnum, svo björgunarfólk losaði rörið, sem er um tíu sentímetrar í þvermál, og fór með það ásamt barninu á nærliggjandi sjúkrahús. Það tók björgunarfólk og lækna um klukkustund að leysa barnið úr prísundinni og reyndist það vera drengur. Hann var enn með naflastrenginn fastan við fylgjuna. Drengurinn var með skrámur í andliti og víðar og hægst hafði á hjartslætti hans, en var hann settur í öndunarvél og er ástand hans nú stöðugt. Margir hafa fært drengnum gjafir á spítalann en engir aðstandendur hafa gefið sig fram. Lögreglan leitar að foreldrum drengsins og eiga þeir yfir höfði sér ákæru um manndrápstilraun. Ekki er óalgengt að börn séu yfirgefin í Kína en þar er hægt að sekta foreldra sem eignast fleiri en eitt barn.
Mest lesið Stúlkan er látin Innlent Tveir stungnir í gistiskýlinu Granda Innlent Guðlaugur Þór miður sín vegna hraðaksturs Innlent Segir algengan misskilning að læknar séu hátekjustétt Innlent Handtóku tvo unga menn eftir að upptökur voru skoðaðar Innlent Dagarnir miklu fleiri hjá Davíð og Ingibjörgu Innlent Náðu líkamsárás á myndband Innlent „Við snúum bökum saman og náum tökum á stöðunni“ Innlent „Löggan er ekki að fara að labba í gegnum Garðabæ og leita á ungmennum“ Innlent Hneig niður á miðjum tónleikum Erlent Fleiri fréttir Slysið hörmulega muni ekki hafa áhrif á vopnasendingar Hneig niður á miðjum tónleikum Njósnamjaldurinn Hvaldimir allur Rekur yfirmann flughersins Trump ætlar að kjósa gegn rétti til þungunarrofs Lokar fyrir aðgang að X í Brasilíu Hefðu getað komið í veg fyrir árásina með leyfi bandamanna Stúlka á leikvelli lést í sprengjuárás Útgáfufyrirtækin höfða mál gegn Flórída vegna bókalaga Drepa fíla og fleiri dýr til að bregðast við hungri sökum þurrka Þungt haldnir eftir að eldingu laust niður á fótboltaæfingu Starmer sagður hafa látið fjarlægja málverk af Thatcher Starfsmaður Wells Fargo sat látinn við skrifborð sitt í fjóra daga Láta af átökum í þrjá daga til að greiða fyrir bólusetningum Ætlar að skipa repúblikana í ráðuneyti sitt Telja öldu hafa grandað eftirlíkingu af víkingaskipi Fulltrúar Trump hrintu starfsmanni hermannagrafreits Ætluðu sér að myrða tugþúsundir á tónleikum Swift Aukin spenna vegna aðgerða Ísraelshers á Vesturbakkanum Árásarmaðurinn verði ekki látinn laus fyrr en að undangengnu mati Mokuðu upp 40 tonnum af dauðum fisk á sólarhring Stofnandi Telegram ákærður fyrir glæpastarfsemi á miðlinum Tveir drengir grófust undir sandi í Danmörku og létust Þrír nýir ráðherrar í Danmörku: „Við erum farin inn að spila skák“ Árásarmaður Ingunnar iðrast einskis Braut gegn hundruðum stúlkna í 20 ríkjum Harris og Walz veita loks viðtal Tíu drepnir í árásum Ísraelshers á Vesturbakkanum Ný sérsniðin ákæra á hendur Trump Segjast hafa bjargað gísl úr jarðgöngum á Gasa Sjá meira