Körfubolti

Drekarnir grilluðu KFUM-drengina

Jakob og Hlynur.
Jakob og Hlynur.
Íslendingaliðið Sundsvall Dragons lenti ekki í neinum vandræðum í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í kvöld.

Dragons lagði þá lið KFUM Nässjö, 92-53, en yfirburðir Drekanna miklir í kvöld.

Ægir Þór Steinarsson fór mikinn í liði Sundsvallog skoraði 12 stig ásamt því að gefa tvær stoðsendingar og taka tvö fráköst.

Hlynur Bæringsson skoraði 9 stig fyrir Sundsvall, tók 6 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Jakob Örn Sigurðarson skoraði 8 stig og gaf 5 stoðsendingar rétt eins og félagi sinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×