Dæmt á morgun í máli íslensku stúlknanna Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 12. nóvember 2013 20:26 mynd/365
Dómur verður kveðinn upp á morgun í máli tveggja 19 ára íslenskra stúlkna sem handteknar voru í Tékklandi fyrir rúmu ári síðan. Samkvæmt upplýsingum mbl.is var ákæra á hendur stúlkunum birt fyrir síðustu helgi, en þær eru ákærðar fyrir að hafa flutt rúm þrjú kíló af kókaíni til landsins. Stúlkurnar voru handteknar á Vaclav Havel-flugvellinum í Prag, höfuðborg Tékklands, 7. nóvember í fyrra. Þær voru að koma frá Sao Paulo í Brasilíu en höfðu millilent í München í Þýskalandi. Þær hafa setið í gæsluvarðhaldi í Tékklandi frá því málið komst upp. Vitnaleiðslur fóru fram í málinu í Prag í dag og verður dómur kveðinn upp á morgun. Kókaínið, sem var mjög hreint, var vandlega falið í fóðri tösku og kom fram í fyrstu fréttum að handtakan væri afrakstur samvinnu tékkneskra og þýskra yfirvalda. Eins og fram hefur komið á Vísi eru hörð viðurlög við smygli af þessu tagi í Tékklandi og í fyrra kom fram í þarlendum fjölmiðlum að stúlkurnar gætu átt yfir höfði sér tíu til átján ára langt fangelsi. Faðir annarrar stúlkunnar sagði í samtali við Vísi í sumar að hann hefði enga tilfinningu fyrir því hversu þungan dóm þær munu fá í ljósi þess hversu litlar upplýsingar hafa borist til fjölskyldunnar, en eina sem hægt sé að gera er að bíða og vona það besta.
Mest lesið Jökulhlaup hafið úr Mýrdalsjökli og hringveginum lokað Innlent Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Innlent Skipuleggjendur Druslugöngunnar þurftu fljótlega að loka fyrir innsendingar Innlent Fullkomið gagnsæi mikilvægt, greiði fyrir greiða ekki við hæfi Innlent Full ástæða til að vara foreldra við Innlent Merki Coolbet fjarlægt eftir símtal fréttamanns Innlent Með veiðistangir en neituðu því að hafa verið að veiða Innlent Útskýrir ummælin um barnlausar kattarkonur Erlent Biðst velvirðingar á myndbirtingunni Innlent Lögreglan búin að finna manninn sem beraði sig Innlent Fleiri fréttir Óvissustig vegna jökulhlaups og Druslugangan Lýsa yfir óvissustigi og skipa fólki að yfirgefa svæðið Jökulhlaup hafið úr Mýrdalsjökli og hringveginum lokað Áhyggjur af gasmengun vegna jökulhlaups Fullkomið gagnsæi mikilvægt, greiði fyrir greiða ekki við hæfi Bílakaup verðandi forseta og Druslugangan Lögreglan búin að finna manninn sem beraði sig Skipuleggjendur Druslugöngunnar þurftu fljótlega að loka fyrir innsendingar Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Merki Coolbet fjarlægt eftir símtal fréttamanns Bálhýsi á skógræktarsvæði á Borg í Grímsnesi Biðst velvirðingar á myndbirtingunni Með veiðistangir en neituðu því að hafa verið að veiða Full ástæða til að vara foreldra við Málið óheppilegt og mjög klaufalegt Fíkniefni á samfélagsmiðlum og bílakaup verðandi forseta Ekki verið ætlun þeirra að gera bílakaupin opinber Forstjóri Brimborgar á athyglisverðum gestalista Höllu Kæra Byko vegna límmiða úr sögunni Ármúlinn verði vel nothæfur leikskóli eftir tvær vikur Hnífamaðurinn í Lundi áfram bak við lás og slá „Hann meiddi mig ekki mikið“ Umboðsmaður barna krefst svara um nýtt námsmat Sala á fíkniefnum fari fram fyrir opnum tjöldum Ferðamennirnir lausir úr haldi eftir líkamsárás Sala fíkniefna fyrir opnum tjöldum og stemmning á Húsavík Ný líkön sýna umfang hraunsins Allt í háaloft þegar faðirinn sneri til baka úr veikindaleyfi Óbreyttir bændur í Mýrdalnum hafi ekki efni á malbiki Ragnar Þór kennir Pawel eitt og annað í kennslufræðum Sjá meira