Körfubolti

Hörður ágætur í tapi gegn liði Jóns

Hörður Axel í landsleik.
Hörður Axel í landsleik.
Lið Jóns Arnórs Stefánssonar, CAI Zaragoza, vann auðveldan sigur, 95-79, á Herði Axel Vilhjálmssyni og félögum hans í CB Valladolid.

CAI leiddi allan leikinn og hafði Valladolid ætíð í hæfilegri fjarlægð.

Jón Arnór gat ekki leikið með CAI vegna meiðsla en Hörður Axel átti fínan leik með Valladolid. Hann skoraði tíu stig á þeim rúmu fimmtán mínútum sem hann spilaði.

CAI er fyrir ofan miðja deild en Valladolid situr á botn spænsku úrvalsdeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×