Leik lokið: Keflavík - Njarðvík 99-79 | Meistararnir komnir á blað eftir frábæran fjórða leikhluta Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 9. október 2024 20:52 vísir/Diego Íslandsmeistarar Keflavíkur unnu góðan sigur á nágrönnum sínum í Njarðvík þegar liðin mættust í 2. umferð Bónus-deildar kvenna í körfuknattleik í kvöld. Lokatölur 99-79 eftir frábæran fjórða leikhluta heimakvenna. Keflavík hafði frumkvæðið lengst af í kvöld en Njarðvík átti gott áhlaup í þriðja leikhluta og gerði leikinn spennandi. Í þeim fjórða náði Keflavík hins vegar vopnum sínum á ný. Njarðvíkurliðið virkaði þreytt og þá fór Thelma Dís Ágústsdóttir á kostum og raðaði niður þriggja stiga körfum. Keflavík vann leikhlutann 32-14 og leikinn 99-79. Nánari umfjöllun og viðtöl má lesa á Vísi síðar í kvöld Bónus-deild kvenna Keflavík ÍF UMF Njarðvík
Leik lokið: Keflavík - Njarðvík 99-79 | Meistararnir komnir á blað eftir frábæran fjórða leikhluta