Sport

Aníta, Arna Stefanía og Þórdís settu Íslandsmet í sama hlaupi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Arna Stefanía stefnir á þátttöku í sjöþraut á HM 19 ára og yngri í Eugene, Oregon næsta sumar.
Arna Stefanía stefnir á þátttöku í sjöþraut á HM 19 ára og yngri í Eugene, Oregon næsta sumar. Mynd/Stefán
Arna Stefanía Guðmundsdóttir kom fyrst í mark í 300 metra hlaupi á jólamóti ÍR um helgina. Arna Stefanía hljóp á tímanum 39,59 sekúndur sem er Íslandsmet í flokki 18-19 ára. Frá þessu er greint á Silfrid.is.

Aníta Hinriksdóttir, félagi hennar úr ÍR, kom næst í mark á 39,80 sekúndum sem er bæting um rúma sekúndu hjá henni innanhúss og Íslandsmet í flokki 16-17 ára. Þórdís Eva Steinsdóttir úr FH varð þriðja á 40,49 sekúndum sem er met í flokki 13-14 ára.

Í karlaflokki kom ÍR-ingurinn Helgi Björnsson fyrstur í mark á 35,49 sekúndum og bætti sig um rúma sekúndu. Svipaða sögu er að segja af Haraldi Einarssyni úr Ármanni sem kom í mark á 35,98 sekúndum. Gunnar Guðmundsson úr ÍR bætti sig um 39/100 á tímanum 36,30 sekúndum.

Einar Daði Lárusson var á meðal keppenda í 60 metra hlaupi en tugþrautarkappinn glímdi við meiðsli á árinu 2013. Þar sigraði Daníel Agnarsson úr Breiðabliki á 7,17 sekúndum, Haraldur Einarsson varð annar á 7,18 sekúndum og Einar Daði þriðji á 7,28 sekúndum.

Kristín Birna Ólafsdóttir var eini keppandinn í 60m grindahlaupi og hljóp á 8,78 sekúndum. Það er hennar besta hlaup í tvö og hálft ár.

Arnar Pétursson úr ÍR kom fyrstur í mark í míluhlaupi á tímanum 4:24,01 mínútum. Kári Steinn Karlsson héraði fyrir Arnar allt hlaupið en kláraði að vísu sjálfur á 4:23,28 mínútum. Sæmundur Ólafsson úr ÍR kom næstur í mark á 4:36,69 mínútum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×