Suárez hættur að bíta eftir að hafa leitað aðstoðar Kristinn Páll Teitsson skrifar 19. ágúst 2014 17:15 Luis Suárez í fyrsta leik sínum fyrir Barcelona. Vísir/Getty
Luis Suárez lofaði á fyrsta blaðamannafundi sínum sem leikmaður Barcelona að hann væri hættur að bíta leikmenn. Suárez afplánar þessa dagana fjögurra mánaða keppnisbann fyrir að bíta Giorgio Chiellini í leik Ítalíu og Úrúgvæ á Heimsmeistaramótinu í sumar. Var það í þriðja sinn sem Suárez er gripinn við að bíta leikmann á ferlinum en hann beit Otman Bakkal í leik með Ajax árið 2010 og Branislav Ivanovic í leik gegn Chelsea árið 2013. „Ég tek leikbanni mínu eins og það er og ég sætti mig við það. Ég hef beðist afsökunar og ég hef leitað mér aðstoðar til þess að takast á við þetta vandamál. Ég lofa ykkur stuðningsmönnunum að þetta muni ekki gerast aftur.“ „Barcelona gaf mér tækifæri að leika með liðinu sem mig hefur dreymt um að leika með og ég get ekki beðið eftir að byrja að spila fleiri leiki. Það voru fleiri lið á eftir mér en ég þurfti ekki að hugsa mig um þegar Barcelona kom inn í myndina,“ sagði Suárez sem lék sinn fyrsta leik fyrir Barcelona í gær í æfingarleik gegn Leon en komst ekki á blað.
Spænski boltinn Mest lesið „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ Fótbolti Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ Íslenski boltinn Ótrúleg markasúpa í Katalóníu Fótbolti Róbert hættir með Gróttu eftir tímabilið Handbolti Uppgjörið: Frakkland - Ísland 3-2 | Frakkar númeri of stórir Fótbolti „Eins gott að þeir fari að fokking semja“ Körfubolti Inter í undanúrslit Fótbolti „Síðasti þriðjungur var erfiður fyrir okkur“ Fótbolti Aþena vann loksins leik Körfubolti Chelsea skrapaði botninn með Southampton Enski boltinn Fleiri fréttir Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ „Síðasti þriðjungur var erfiður fyrir okkur“ Ótrúleg markasúpa í Katalóníu Uppgjörið: Frakkland - Ísland 3-2 | Frakkar númeri of stórir Inter í undanúrslit Chelsea skrapaði botninn með Southampton Fjórar breytingar hjá Íslandi: Löng bið Andreu á enda og tímamót hjá Glódísi Dramatík þegar Noregur komst á blað í Þjóðadeildinni ÍA fær Baldvin frá Fjölni Setur magnað met gegn Íslandi og Glódís upp fyrir Katrínu Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Sædís mætir Palestínu Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Gylfi orðinn Víkingur Ætla að stoppa Sveindísi og keyra yfir Ísland Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Galatasaray sakar Mourinho um rasisma „Erfiðleikar utan vallar“ hafa styrkt spænsku stelpurnar „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Valsmenn settu sex gegn Grindavík „Danska“ félagið í MLS sigraði meistarana í fyrsta leik Gísli og félagar með fullt hús stiga Hélt að „spilling“ þýddi eitthvað annað og dregur ummælin til baka Jóhann byrjaði og Kurt Zouma kom inn af bekknum í sigri Al Orobah Sjá meira