Innlent

Erfitt að ferðast með barnavagna um ófæra göngustíga

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hér má sjá hversu mikill snjór er við göngustíga á Nesveginum.
Hér má sjá hversu mikill snjór er við göngustíga á Nesveginum.
Formaður Samtaka um bíllausan lífstíl segir það greinilegt að bílar séu í forgangi og ekki sé hugsað nægilega um gangandi vegfarendur þegar snjó er rutt af götum borgarinnar. Oft er snjónum rutt upp á gangstéttir og eiga gangandi vegfarendur erfitt með að komast leiða sinna.

Blaðamaður Vísis hefur rætt við nokkra sem fóru í strætó í morgun. Á meðfylgjandi mynd má sjá strætó á leið 13 koma inn Nesveginn á Seltjarnarnesi. Viðmælandi Vísis sagðist hafa verið nokkuð vel búinn en hann hafi þurft að hafa sig allan við til þess að komast úr strætóskýlinu og út á götuna þar sem strætisvagninum var lagt.

„Já, það er greinilegt að það er einhver forgangur í gangi. Þetta snýst um að moka göturnar, sem er eðlilegt. En það þarf líka að huga að gangandi vegfarendum. Það væri æskilegra að koma upp fyrirkomulagi þar sem snjónum er ekki mokað upp á gangstéttirnar,“ segir Arnór Bogason, formaður Samtaka um bíllausan lífstíl.

„Það gengur ekki að fólk þurfi að stofna sér í hættu og fara út á götu, jafnvel með barnavagna. Mikil hálka er á vegum og þetta eru dimmustu tímar ársins. Það þarf að skoða hvort það sé ekki hægt að moka snjónum eitthvað annað.“

Arnór segist skilja að starf þeirra sem ryðja snjó af götum sé erfitt og að snjórinn sem nú er á götum borgarinnar geti reynst þungur og erfiður í mokstri. „Ég þekki ekki mikið til í þessum snjómokstursbransa og veit ekki hvað er hægt að gera í þessu. En maður hefur heyrt hugmyndir um að moka snjónum upp á palla eða eitthvað svoleiðis. Það þarf allavega að reyna að haga málum þannig að gangandi vegfarendur séu ekki í hættu. Við þurfum að gera okkur grein fyrir því að það eru í raun allir gangadi vegfarendur á einhverjum tímapunkti. Þegar maður fer út úr bílnum sínum er maður orðinn gangandi vegfarandi,“ segir formaðurinn og bætir við:

„Við þurfum líka að gera okkur grein fyrir því að við erum öll í umferðinni. Það þarf að taka tillit til allra.“

Á Facebook-síðu Samtaka um bíllausan lífstíl má sjá umræður um snjómokstur á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir til dæmis móðir sem er bíllaus frá því að hún hafi lent í miklu veseni þegar hún fer í göngu með barnið sitt sem situr í kerru. Hún segir erfitt að ferðast um gangstíga borgarinnar. Önnur móðir með tvo drengi, annan þriggja mánað og hinn tveggja ára segir vera nánast ófært að fara með barnavagna um gangstíga sumsstaðar í borginni.

Umræðurnar eru líflegar á síðunni. Meðlimir hópsins segja flestir erfitt að komast leiða sinna á tveimur jafnfljótum en nokkrir taka sérstaklega fram að hjólastígar eru ruddir og þakka fyrir það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×