Handbolti

Svíar unnu heimsmeistara Spánverja

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/AFP
Svíþjóð vann fimm marka sigur á Spáni í æfingaleik í Malmö í kvöld en báðar þjóðir eru að undirbúa sig fyrir Evrópumótið í Danmörku sem hefst um næstu helgi. Spánverjar eru í riðli með okkur Íslendingum og ríkjandi heimsmeistarar.

Þetta var þriðji leikur liðanna í janúar en Spánverjar höfðu unnið hina tvo, fyrst 28-22 sigur á æfingamóti á Spáni og svo 28-24 í Kristianstad í gær.

Svíar voru með forystuna nær allan tímann í kvöld og tveimur mörkum yfir í hálfleik, 15-13. Svíar skoruðu tvö fyrstu mörk seinni hálfleiksins og náðu mest sex stiga forskoti, 28-22.

Johan Sjöstrand var frábær í marki Svía en hann varði 19 skot í leiknum þar af tvö vítaköst. Sjöstrand er liðsfélagi Guðjóns Vals Sigurðssonar og Aron Pálmarssonar hjá Kiel. Niclas Ekberg var markahæstur hjá Svíum með sex mörk en Victor Tomas Gonzalez skoraði mest fyrir Spán eða fjögur mörk.



Svíþjóð - Spánn  30-25 (15-13)

Mörk Svíþjóðar: Niclas Ekberg 6 (3 víti), Fredrik Petersen 4 (2), Kim Ekdahl Du Rietz 4, Magnus Persson 3, Jonas Källman 3, Mattias Zachrisson 3, Jonas Larholm 2, Tobias Karlsson 1, Lukas Karlsson 1, Patrik Fahlgren 1, Andreas Nilsson 1, Niclas Barud 1.

Mörk Spánar: Victor Tomas Gonzalez 4, Albert Rocas Comas 3 (1), Eduardo Gurbindo Martinez 2, Raul Entrerrios Rodriguez 2 (1), Christian Ugalde Garcia 2, Juan Andreu Candua 2, Viran Morros de Argila 2, Antonio Jesus Garcia Robledo 2, Valero Rivera Folch 2 (2), Isaias Guardiola Villaplana 2, Daniel Sarmiento Melian 1. Carlos Ruesga Pasarin 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×