Innlent

Everly-bróðir látinn

Phil Everly, til vinstri, er látinn.
Phil Everly, til vinstri, er látinn.
Bandaríski tónlistamaðurinn Phil Everly er látinn 74 ára að aldri. Banamein hans var lungnasjúkdómur. Hann var annar helmingur dúettsins Everly Brothers sem hann stofnaði ásamt Don, eldri bróður sínum.

Everly Brothers nutu gríðarlegra vinsæla á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar. Mörg lög þeirra bræðra náðu miklum vinsældum en þekktustu lög þeirra eru þó líklega Wake Up Little Susie og Bye Bye Love.

Tónlist þeirra hafði mikil áhrif á Bítlanna og Beach Boys svo einhverjir séu nefndir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×