Handbolti

Rutenka gæti misst af fyrsta leik vegna veikinda

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sergej Rutenka í leik með Barcelona.
Sergej Rutenka í leik með Barcelona. nordicphotos/getty
Óvíst er hvort Sergej Rutenka, leikmaður Hvít-Rússa, taki þátt í leiknum í kvöld þegar liðið mætir Króatíu í fyrsta leik sínum í D-riðli á Evrópumótinu í handknattleik sem fram fer þessa dagana í Danmörku.

Rutenka er langbesti leikmaður liðsins en hann ku vera með flensu og 39 stiga hita. Liðin mætast í Bröndbyhallen í Kaupmannahöfn í kvöld.

Rutenka leikur með stórliði Barcelona og er oft talinn einn af bestu handboltamönnum heimsins í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×