Björk og félagar hafa safnað 35 milljónum Stefán Árni Pálsson skrifar 18. mars 2014 15:34 Blaðamannafundur vegna tónleikanna í kvöld fór fram í Hörpu í dag. visir/pjetur
Á blaðamannafundi í Hörpuhorni í dag kom fram að aðstandendur Stopp Gætum garðsins! vilji árétta markmið og tilgang þeirra viðburða sem eiga sér stað í dag, þ.e.: Viðhafnarsýningar Noah í Sambíóunum Egilshöll og tónleikum í Eldborg. Meginmarkmið er að vekja athygli á náttúruvernd og þeim mikilvægu verkefnum sem eru á dagskrá í dag á þeim vettvangi. Ennfremur er tilgangur viðburðanna að safna peningum til styrktar Landvernd og NSÍ. Fram kom á fundinum að tónleikarnir séu löngu uppseldir og ljóst að markmið um fjáröflun fyrir náttúruverndarhreyfinguna hafa tekist. Í dag barst veglegur liðsauki frá Náttúruverndarsjóði Pálma Jónssonar stofnanda Hagkaups en sá sjóður mun leggja 24 milljónir til söfnunarinnar. Samtals er því talið að 35 milljónir muni renna til þessara samtaka. Það er von aðstandenda Gætum Garðsins að almenningur gangi til liðs við þessi samtök og styðji þau í verki. Samtökin þakka frábærar viðtökur almennings, rausnarlegt framlag listamanna og hina höfðinglegu gjöf frá Náttúruverndarsjóði Pálma Jónssonar. Á blaðamannafundinum voru: Patti Smith, Björk, Darren Aronofsky, fulltrúar NSÍ og Landverndar auk aðstandenda Stopp-Gætum garðsins! Aðspurðir á fundinum í hvað ætti að nota peningana sögðu forsvarsmenn Landverndar og Náttúruverndarsamtaka Íslands, að ekki væri búið að taka ákvörðun um það. Meðal annars færu þeir þó í verkefnið Hjarta landsins. Á fundinum sagði Darren Aronofsky að hann hefði farið víða um heiminn og að Ísland væri einstakur staður. Hann sagði fjársóð Íslands vera í ósnortinni náttúru og í framtíðinni yrði sá fjársjóður verðmætari. Patti Smith sagðist hafa komið hingað til lands fyrst sem ung kona og svo aftur árum seinna, en landið væri þá alveg eins. Hún sagði móðir náttúru hafa verið nauðgað af fyrirtækjum og iðnaði um árabil. „Ísland er einn síðasti staðurinn á jörðinni þar sem móðir náttúra finnur styrk sinn.“ Tónlistarkonurnar vinsælu Patti Smith og Lykke Li munu koma fram ásamt flóru íslenskra tónlistarmanna á tónleikunum. Tónleikarnir verða haldnir í þágu íslenskrar náttúru en það eru Náttúruverndarsamtök Íslands og Landvernd sem standa fyrir þeim. Allir listamenn munu gefa vinnu sína en ásamt þeim Smith og Li koma fram Björk, Retro Stefson, Of Monsters and Men, Samaris, Mammút og Highlands.Í yfirlýsingu frá forsvarsmönnum tónleikanna kemur fram að um heim allan hafi náttúrunni og umhverfi verið fórnað á altari þróunar sem aldrei getur talist sjálfbær. Hér að neðan má lesa bréf frá stjórn Náttúruverndarsjóðs Pálma Jónssonar sem var lesið upp á fundinum:Náttúruverndarsjóður Pálma Jónssonar stofnanda Hagkaups fagnar átakinu Stopp - Gætum garðsins! Draumur um heildstæðan þjóðgarð á miðhálendinu hefur lifað með sjóðnum frá stofnun hans. Íslenska hálendið er einstakt á heimsvísu í ljósi fegurðar, jarðmyndana, lífríkis og síðast en ekki síst ósnortins víðernis. Okkur sem eigum þetta fjöregg ber skylda til að standa vörð um verndun þess og skila því óspjölluðu í hendur næstu kynslóða. Núna eru yfirvofandi miklar ógnir við hálendið af mannavöldum og því hefur þetta verkefni aldrei verið brýnna.Allir þeir sem unna íslenskri náttúru og ekki síst náttúrverndarhreyfingar landsins eiga að sameinast um þetta verkefni. Nú er tækifæri til að stuðla á kraftmikinn hátt að því að miðhálendi Íslands verði skilgreint og verndað sem sú heild sem það nú er.Náttúruverndarsjóður Pálma Jónssonar vill leggja sitt lóð á vogarskálarnar til að þetta takist og þar með gæta garðsins stóra, með því að styrkja Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands með myndarlegri upphæð.Lilja Pálmadóttir formaður stjórnar,Guðmundur Oddur Magnússon stjórnarmaðurSkúli Skúlason stjórnarmaður.
Mest lesið Segist ætla finna orsök einhverfu fyrir september Erlent Þyrlu Landhelgisgæslunnar flogið norður vegna slyssins Innlent „Mér finnst þessi tilraun heldur ósmekkleg“ Innlent Lausn menntamálaráðherra sé valdníðsla Innlent Hringbraut lokað vegna bílslyss Innlent Fyrstu kvenkyns prófessorarnir í stærðfræði fagna dátt Innlent Samstarf með ESB í varnarmálum komið í „formlegan farveg“ Innlent Nauðgaði barnungri náfrænku sinni margítrekað Innlent Myndir af fjölskyldunni til sölu í fjóra tíma eftir þyrluslysið Erlent Vilja ekki að íbúar upplifi sig undir stöðugu eftirliti stóra bróður Innlent Fleiri fréttir Samstarf með ESB í varnarmálum komið í „formlegan farveg“ Fyrstu kvenkyns prófessorarnir í stærðfræði fagna dátt Lausn menntamálaráðherra sé valdníðsla Vilja ekki að íbúar upplifi sig undir stöðugu eftirliti stóra bróður Þyrlu Landhelgisgæslunnar flogið norður vegna slyssins „Mér finnst þessi tilraun heldur ósmekkleg“ Tifandi tímasprengjur á götum borgarinnar Hringbraut lokað vegna bílslyss Tifandi tímasprengjur, Kári um ósmekklegar tilraunir og stærðfræði-Helgurnar Nemendur fái inn hjá Tækniskólanum Engar hvalveiðar Hvals í sumar Kristrún og Guðmundur leiða áfram flokkinn Aðalsteinn leiðir samráðshóp um öryggis- og varnarmál Nauðgaði barnungri náfrænku sinni margítrekað Bílastæðin fullbókuð um páskana „Tengdamömmumálið“ komið til Persónuverndar Dómur sterabolta mildaður verulega vegna tölvubréfs dómara Ólíklegt að Bandaríkjamenn gefi Íslendingum valið Hefja formlega rannsókn á SVEIT og Virðingu Veiðifélag fær þriggja milljóna sekt vegna innflutnings á seiðum Gaman að fagna 25 ára afmæli í ríkisstjórn Launalausir starfsmenn greiða rafmagnsreikninginn Bílastæðasjóður græddi 270 milljónir á stækkun gjaldsvæðis Enn óvissa á mörkuðum og Kristrún vill flýta sér hægt Rangur maður grunaður um að valda sjónskerðingu á myrku dansgólfi Alþingi komið í páskafrí „Það verður almannavá, dauðsföll munu færast á annað stig“ Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum - Hvert stefnir Ísland? Tilfærsla styrkja til tekjulægri gæti seinkað rafbílavæðingu Rannsókn á hrottalegri frelsissviptingu og fjárkúgun lokið Sjá meira