Barack Obama: „Bandaríkin munu standa þétt við bakið á Úkraínumönnum“ Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 17. mars 2014 14:41 Barack Obama, forseti Bandaríkjanna. vísir/afp „
Bandaríkin munu standa þétt við bakið á Úkraínumönnum,“ sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti í yfirlýsingu í Hvíta húsinu fyrir skömmu. Greint var frá því í dag að Evrópusambandið hafi sett farbann á 21 embættismann í Rússlandi og í Úkraínu og kyrrsett eignir þeirra eftir að þingið á Krímskaga lýsti formlega yfir sjálfstæði frá Úkraínu. Kosið var um málið í gær og vildu 97 prósent þeirra sem kusu að Krím verði hluti af Rússlandi. Þá hafa bandarísk yfirvöld einnig fryst eignir 11 einstaklinga sem sagðir eru bera ábyrgð á atkvæðagreiðslunni og sett á þá farbann. Einn þeirra er Viktor Janúkovítsj, fyrrverandi forseti Úkraínu. Obama sagði í yfirlýsingunni að Bandaríkin myndu aldrei viðurkenna úrslit kosninganna, en kosningarnar eru ólöglegar að hans mati og Evrópusambandsins. Þá boðaði hann frekari refsiaðgerðir ef Rússar dragi ekki herlið sitt til baka frá Krímskaga. Þá sagði hann að Bandaríkin myndu halda áfram að gera Rússum það ljóst að frekari afskipti muni einangra Rússland og veikja stöðu landsins í alþjóðasamfélaginu. William Hague, utanríkisráðherra Bretlands, segir refsiaðgerðirnar ekki endilega til frambúðar. Alexei Navalní, leiðtogi rússnesku stjórnarandstöðunnar, segir á Twitter að refsiaðgerðirnar séu hlægilegar. Obama hafi einungis gert sig að athlægi og „hvatt glæpamennina áfram“.Yfirlýsing frá Hvíta húsinu.
Mest lesið Líf ólíklega í hættu en byggð gæti gjöreyðilagst Innlent „Þetta eru atburðir sem við höfum aldrei séð áður“ Innlent Svava Lydia komin í leitirnar Innlent Halla gerði hlé vegna veikinda veislugests Innlent Afsökunarbeiðni til Ólafar ekki í kortunum Innlent Reyndu að sprengja upp hraðbanka sem stendur allt af sér Innlent Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Erlent Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Innlent Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Innlent Viðurkenndi brot gegn barnungri systur en sýknaður Innlent Fleiri fréttir Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Grunaður um að verða mæðgum að bana Tóku mið af viðskiptahalla en ekki tollum „Kokkurinn“ í Bandidos látinn Sjá meira