Körfubolti

Jakob stigahæstur í sigri Drekanna

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jakob Örn Sigurðarson spilaði vel í sigri Sundsvall Dragons í dag.
Jakob Örn Sigurðarson spilaði vel í sigri Sundsvall Dragons í dag. Vísir/Valli
Íslendingaliðið Sundsvall Dragons vann góðan sigur á Uppsala Basket í úrslitakeppninni í sænska körfuboltanum í dag. Lokatölur urðu 88-81.

Jakob Örn Sigurðarson og Hlynur Bæringsson áttu báðir afbragðs leik í liði Drekanna. Jakob var stigahæstur með 24 stig og Hlynur skoraði 17 stig, tók 13 fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Ægir Þór Steinarsson spilaði rúmar fimm mínútur, tók eitt frákast og gaf eina stoðsendingu.

Staðan í einvígi liðanna er nú 2-1, Uppsala í vil. Liðin mætast næst á miðvikudaginn á heimavelli Uppsala. Takist Sundsvall að vinna þann leik, þá verður oddaleikur á föstudaginn á heimavelli Sundsvall.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×