Sport

Rakst í Hernandez og var drepinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Saksóknari í einni lögsókninni gegn Aaron Hernandez, fyrrum NFL-leikmanni, fullyrðir að lítið hafi þurft til að reita hann til mikillar reiði.

Hernandez var fangelsaður í fyrra þegar hann var grunaður um að hafa myrt Odin Lloyd þann 17. júní í fyrra. Stuttu síðar vöknuðu grunsemdir um að hann hefði átt þátt í tvöföldu morði sem átti sér stað í Boston í fyrra og var hann nýlega ákærður fyrir þau.

Hernandez var á mála hjá New England Patriots og skrifaði undir nýjan fimm ára samning við liðið aðeins sex vikum eftir að morðin í Boston áttu sér stað. Samningurinn hefði tryggt Hernandez 40 milljónir Bandaríkjadala í tekjur á samningstímanum.

Aðdragandi morðanna, eins og saksóknari lýsti honum, var með ólíkindum. Hernandez var staddur á næturklúbbi með vinum sínum þegar ókunnugur maður rakst óvart í hann með þeim afleiðingum að hann hellti niður drykknum sínum.

Fullyrt var að Hernandez hafi túlkað þetta sem svo að maðurinn, Daniel de Abreu, hafi gert þetta viljandi til að egna hann og vanvirða. Samkvæmt frásögn saksóknara mun Abreu hafa rekið sig í Hernandez á dansgólfinu, brosað til hans og vikið sér svo frá honum án þess að biðjast afsökunar. Abreu gerði sér ekki grein fyrir því hver Hernandez væri.

Þegar Abreu keyrði svo í burtu frá skemmtistaðnum ásamt tveimur félögum sínum veitti Hernandez honum eftirför og dró upp byssu þegar bílarnir námu staðar við umferðarljós. Hann er svo sakaður um að hafa skotið bæði Abreu og Safiro Furtado, sem sat í farþegasætinu, til bana og sært annan sem sat í baksætinu.

Óvíst er hvort morðmálin tvö tengist en þó er staðfest að Lloyd er ekki þriðji maðurinn sem sat í bíl Abreu.

Hernandez var rekinn frá Patriots sama dag og hann var handtekinn.

NFL

Tengdar fréttir

Lögreglan fann leyniíbúð Hernandez

Sönnunargögnin halda áfram að hlaðast upp gegn NFL-leikmanninum Aaron Hernandez en hann var handtekinn og ákærður fyrir morð um daginn.

Fær ekki að horfa á leikinn í steininum

Aaron Hernandez, fyrrum leikmaður New England Patriots, fær ekki að horfa á sitt gamla lið spila til úrslita í AFC-deildinni í NFL annað kvöld.

Hernandez verður handtekinn fljótlega

Samkvæmt heimildum bandarískra fjölmiðla virðast það ekki vera spurning um hvort heldur hvenær Aaron Hernandez, leikmaður New England Patriots, verður handtekinn út af morðmáli.

Hernandez lamdi mann í fangelsinu

Fyrrum NFL-stjarnan, Aaron Hernandez, er ekki hættur að komast í fjölmiðla þó svo hann sitji á bak við lás og slá grunaður um morð.

Hernandez handtekinn og rekinn frá Patriots

Aaron Hernandez, einn besti innherji NFL-deildarinnar, var í dag handtekinn og ákærður fyrir morð. Lið hans, New England Patriots, tilkynnti í dag að Hernandez væri ekki lengur leikmaður þess.

Búið að ákæra Hernandez fyrir morð

Aaron Hernandez, fyrrum leikmaður New England Patriots í NFL-deildinni, var í gær ákærður fyrir morð. Hann var einnig ákærður fyrir vörslu ólöglegra skotvopna.

Hernandez er toppmaður

Það er ekki beint slegist um að taka upp hanskann fyrir Aaron Hernandez þessa dagana. Búið er að kæra hann fyrir morð og hann var í kjölfarið rekinn frá NFL-liðinu New England Patriots.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×