Íslenski boltinn

Ögmundur er á leið til Randers

Ögmundur Kristinsson.
Ögmundur Kristinsson.
Bjarni Guðjónsson, þjálfari Fram, staðfesti í kvöld að markvörðurinn Ögmundur Kristinsson væri á förum frá félaginu.

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Vísis er Ögmundur á leið til danska félagsins Randers sem Theodór Elmar Bjarnason leikur með.

Ögmundur fer í læknisskoðun hjá félaginu í vikunni og mun svo skrifa undir eins árs samning við félagið.

Þar sem hann er á leiðinni utan þá lék hann ekki með Fram gegn Fylki í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×