Íslenski boltinn

Nielsen farinn frá Val að eigin frumkvæði

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Danski miðvörðurinn Mads Nielsen er farinn frá Val og mun ekki spila fleiri leiki í Pepsi-deildinni í sumar.

Frá þessu er greint á fótbolti.net, en Nielsen vildi sjálfur komast frá Valsmönnum.

Daninn byrjaði tímabilið frábærlega og var leikmaður umferðarinnar hjá Fréttablaðinu eftir fyrsta leik liðsins gegn KR, en síðan þá hefur hann ekki náð sömu hæðum.

Mads Nielsen spilaði 14 leiki með Val í Pepsi-deildinni og skoraði eitt mark.

Valsmenn lánuðu Matarr Jobe til Ólafsvíkur í félagaskiptaglugganum þannig liðið er í vissum vandræðum með miðvarðarstöðurnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×