Íslenski boltinn

Jafnt á Ásvöllum

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Vísir/Daníel
Haukar og Selfoss gerðu 1-1 jafntefli í 1. deildinni í kvöld í Hafnarfirðinum. Liðin sigla lygnan sjó í neðri hluta deildarinnar og eru örugg með sæti sitt í deildinni eftir tap KV í kvöld.

Ásgeir Þór Ingólfsson kom heimamönnum yfir í fyrri hálfleik en Þorsteinn Daníel Þorsteinsson jafnaði metin fyrir Selfoss í seinni hálfleik.

Hvorugu liði tókst að bæta við marki og skildu liðin því jöfn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×