Íslenski boltinn

KR-ingar vissu af áhuga Norðmanna í fyrra

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Stefán
Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnudeildar KR, segir að framtíð Rúnars Kristinssonar muni skýrast á næstu dögum.

Þetta segir hann í viðtali við Fótbolta.net. „Við höfum vitað af áhuga á honum síðan í fyrra,“ sagði Kristinn.

„Samningurinn er opinn í báðar áttir núna en þetta skýrist vonandi á næstu dögum. Það hefur ekkert komið inn á borð til okkar og við höfum ekki heyrt neitt.“

Rúnar hefur áður lýst því yfir að hann sé opinn fyrir því að taka að sér þjálfun í öðru landi. Hann sagði þó nýlega við Vísi að það væri líklegra en ekki að hann yrði áfram á Íslandi um sinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×