Íslenski boltinn

Þorvaldur: Kemur til greina að halda áfram hjá HK

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Daníel
Þorvaldur Örlygsson, þjálfari HK, segir óvíst hvað taki við hjá sér en hann hefur verið orðaður við önnur lið.

Líklegt er að nokkur lið verði í þjálfaraleit í vikunni. ÍBV er án þjálfara sem stendur og þá er óvíst hvað verður hjá Val, Breiðabliki, KR og fleiri liðum.

„Það er allt saman óráðið hjá mér og því get ég lítið tjáð mig,“ sagði Þorvaldur í samtali við Vísi í dag.

„Það er alveg eins möguleiki í stöðunni að halda áfram hjá HK enda líkar mér ágætlega þar.“

Þorvaldur hefur einnig verið orðaður við lið í Noregi en hann vildi ekkert segja um hvort að hann hafi verið sambandi við lið þar. „Við skulum sjá hvernig þessi vika þróast,“ sagði hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×