Jóhanna hafnaði orðunni í þrígang Þóra Kristín Ásgeirsdóttir skrifar 27. desember 2014 20:34
Jóhanna Sigurðardótti, fyrrverandi forsætisráðherra segir, að það sér hafi tvisvar sinnum verið boðin stórriddarakross eftir að hún varð forsætisráðherra og einu sinni áður en hún tók við forsætisráðuneytinu. Hún hafi afþakkað í öll skiptin. Hún segir að sér finnist þetta úrelt fyrirbæri og á skjön við nútímahefðir. „Þetta hefur þrisvar sinnum komið upp að mér hefur verið boðin orðan. Einu sinni áður en ég varð forsætisráðherra og síðan í tvígang eftir það. Mér hefur aldrei fundist rétt að þiggja þessa orðu. Mér hefur bara ekki hugnast það. Ég hef auðvitað hugleitt þetta en mér finnst þetta úrelt fyrirbæri og á skjön við nútíma samfélag og nútíma hefðir,“ segir Jóhann Sigurðardóttir.Það kom hvergi fram á sínum tíma að þú hefðir afþakkað orðuna?„Nei, nei, það kom hvergi fram. Ég fékk bréf um þetta og forsetinn hafði síðar samband við mig og ég taldi enga ástæðu til að láta vita af því.“ Jóhanna segist ekki skilja frekar en aðrir hvers vegna ekki var greint frá orðuveitingum til handhafa forsetavalds á dögunum. Jóhanna segist hafa íhugað málið þegar henni var boðin orða en ekki séð af hverju eitt starf ætti að vera merkilegra en annað. Hún segir að löngu sé tímabært að endurskoða þessar orðuveitingar eða draga úr þeim. Margir forsetaframbjóðendur í gegnum tíðina hafi reyndar vakið máls á því. „Af hverju er ein vinna merkilegri en önnur? Ég tel þetta ekki í samræmi við nútímaviðhorf. Þetta hefur annað slagið komið upp, líka hjá forsetaframbjóðendum, að það sé full ástæða til að draga úr þessu eða jafnvel hætta þessu.“
Mest lesið Faðirinn hafi ætlað að skilja hann eftir á flugvellinum Innlent Sigurður Ingi fær innviðaráðuneytið og Bjarni hin tvö Innlent Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Erlent Aðstoðarmenn ráðherra þurfa nú að líta í kringum sig Innlent Nýr aðstoðarmaður rétt fyrir ríkisstjórnarslit Innlent Skýr skilaboð um að hún vilji verða formaður Innlent Fimm milljarða dómur ekki talinn varða mikilvæga hagsmuni Innlent „Ef allir gerðu þetta væri landið stjórnlaust“ Innlent Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Erlent „Jafn óábyrgt og að slíta stjórninni“ Innlent Fleiri fréttir Þórunn og Guðmundur Árni munu bítast um oddvitasætið Uppstillingar á báðum listum í Reykjavík Oddný ætlar ekki aftur fram Minnihlutastjórn tekur væntanlega við völdum á morgun Sigþrúður Ármann sækist eftir fjórða sæti Kragans „Þetta er einhver leikur sem menn ákváðu að spila“ Hinsti fundur ríkisstjórnar og uppstokkun hjá Play Skýr skilaboð um að hún vilji verða formaður Steinunn Þóra gefur ekki kost á sér Stemningin „eftir atvikum ágæt“ Óli Björn hættir á þingi „Ef allir gerðu þetta væri landið stjórnlaust“ Teitur Björn vill setjast í laust sæti Þórdísar Sigurður Ingi fær innviðaráðuneytið og Bjarni hin tvö Þórdís vill sæti Jóns í kjördæmi formannsins Hildur leiðir aðgerðahóp forsætisráðherra um að brúa bilið Aðstoðarmenn ráðherra þurfa nú að líta í kringum sig Fimm milljarða dómur ekki talinn varða mikilvæga hagsmuni Guðmundur Ingi vill fara fram fyrir Samfylkinguna Opna Grindavík öllum eftir helgi Þingflokkarnir funda hver í sínu horni Bæjarstjórinn íhugar alvarlega að bjóða fram krafta sína Bein útsending: Verður Grindavík opnuð fyrir öllum? „Kemur í ljós“ hvort boðaðir ráðherrar mæti Vill vera oddviti áfram og hlakkar til slagsins Útilokar ekkert en mundar tuskuna gegn smjörklípunum Sjálfstæðismenn kjósa um efstu sæti á lista á landsbyggðinni Stefna kennurum fyrir félagsdóm Viðstaddir í Strassbourg fengu smjörþefinn af pólitískri ólgu á Íslandi „Jafn óábyrgt og að slíta stjórninni“ Sjá meira