Lífið

Dóttir Paul Walker erfir allt

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Meadow Walker, fimmtán ára dóttir leikarans Paul Walker, erfir allar eignir hans en hann lést í bílslysi fyrir rúmlega tveimur mánuðum síðan.

Eignir leikarans eru metnar á 25 milljónir dollara, tæpa þrjá milljarða króna.

Meadow býr nú hjá móður sinni en andlát föður hennar hafði mikil áhrif á hana.

„Meadow tók þessu mjög illa en hún er með fjölskyldu sína í kringum sig og mjög góða vini. Við föðmumst mikið og höldumst í hendur,“ sagði afi hennar Paul Walker Sr. í viðtali við E! News í desember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.