Íslenski boltinn

Stefnan klárlega aftur í atvinnumennsku

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Kristján Gauti er að komast í sitt besta form.
Kristján Gauti er að komast í sitt besta form. vísir/Vilhelm
„Mér fannst við spila ágætlega. Við settum eitt mark snemma á þá og þau hefðu getað verið fleiri, en ég er bara ánægður með sigurinn,“ segir Kristján Gauti Emilsson, framherji FH, sem skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í 4-0 sigri FH á Fram á Laugardalsvellinum á mánudagskvöldið.

Kristján Gauti var óstöðvandi í leiknum og hefði átt að skora fleiri mörk sjálfur. Þessi 21 árs gamli strákur er leikmaður 9. umferðar hjá Fréttablaðinu fyrir frammistöðu sína í Dalnum.

„Ég er bara nokkuð sáttur. Ég náði að skora tvö mörk og leggja upp eitt í lokin þannig að ég er sáttur,“ segir Kristján Gauti.

Kominn í gott stand

Kristján Gauti virðist vera kominn í sitt besta form en hann hefur á ferli sínum glímt við löng og ströng meiðsli.

„Ég hef verið óheppinn með meiðsli og það setur alltaf strik í reikninginn. Það er erfitt að þurfa alltaf að koma til baka og vera að missa af leikjum,“ segir Kristján Gauti en tekur það ekki á andlega að standa í svona meiðslum alltaf?

„Jú, ég held ég tali nú fyrir alla fótboltamenn þegar ég segi að það sé leiðinlegt að meiðast en maður bítur bara á jaxlinn og reynir að koma sterkur til baka. Nú er ég búinn að ná mörgum leikjum líkt og í fyrra. Ég er kominn í gott stand,“ segir Kristján Gauti.

Hrikalega góð reynsla

Kristján Gauti fór 17 ára út til Liverpool þegar hann gekk í unglingalið félagsins. Hann segir tímann þar hafa verið lærdómsríkan þó að hann hafi einnig verið erfiður út af eilífum meiðslum.

„Það var hrikalega góð reynsla að æfa eins og atvinnumaður þó að ég hafi verið mestallan tímann meiddur. Ég fékk mikið út úr þessu bæði líkamlega og andlega,“ segir Kristján Gauti.

Hann viðurkennir að það sé erfitt að tækla það andlega að vera sífellt frá vegna meiðsla, en í dag er hann bara ánægður að vera að spila og það fyrir sitt félag.

„Það tekur gríðarlega á að vera meiddur svona lengi eins og ég var. En það er bara gaman að koma heim í FH og ég er þakklátur fyrir að geta spilað fyrir mitt uppeldisfélag,“ segir Kristján Gauti en FH er á toppi deildarinnar.

„Við eigum góðan mögulega á að vinna deildina og svo er Evrópukeppnin spennandi. Við verðum að gera eins og í fyrra þar. Vonandi náum við sama árangri.“

Stefnir aftur út

Frammistaða Kristjáns Gauta í upphafi tímabils hefur vakið athygli út fyrir landsteinana en atvinnumannalið fylgjast nú grannt með gangi mála.

„Ég er alveg pollrólegur í þeim málum og einbeiti mér bara að því að spila vel fyrir FH,“ segir Kristján Gauti. „Ég sé svo bara til hvort ég fer út eftir þetta tímabil eða næsta. Það verður bara að koma í ljós, en það er ekkert í gangi sem ég veit af.“

Stefnan er þó klárlega sett á að fara aftur út. „Það er alveg klárt. Hvort sem það er Holland, Danmörk, Svíþjóð, England eða Noregur; bara eitthvað spennandi,“ segir Kristján Gauti sem langar líka að fá annað tækifæri með landsliðinu. Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson hafa einmitt haft auga með honum.

„Ég átti að spila á móti Eistlandi um daginn en var því miður meiddur. Það var gríðarlega leiðinlegt að missa af þeim leik en vonandi fær maður aftur tækifæri,“ segir Kristján Gauti Emilsson.


Tengdar fréttir

Pepsi-mörkin | 9. þáttur

Níundu umferðinni í Pepsi-deild karla er lokið og sem fyrr má nálgast styttri útgáfu af Pepsi-mörkunum á Vísi.

Uppbótartíminn: Jonathan Glenn með Rivaldo-takta

Níundu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu lauk í gær. Hverjir áttu góðan dag og hverjir áttu erfiðan dag? Hvað segir tölfræðin og hver var umræðan á Twitter? Vísir gerir hér upp umferðina á léttum nótum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×