Innlent

Ekki nógu mikill metnaður fyrir náminu

Kristjana Arnarsdóttir skrifar
„Það er greinilega ekki nógu mikill metnaður fyrir þessu námi innan heilbrigðis- og menntakerfisins,“ segir Guðrún Ebba Ólafsdóttir, einn stofnandi Rótarinnar, en Rótin óskaði eftir svörum frá Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðisráðherra og Illuga Gunnarssyni menntamálaráðherra vegna fyrirkomulags menntunar áfengis- og vímuefnaráðgjafa. Tilefni erindisins var að afla upplýsinga um stöðu mála og áform stjórnvalda um bætta menntun þeirra sem meðhöndla fólk með fíknivanda.

Svörin hafa nú borist og segir Guðrún að af þeim megi ráða að málið sé í ákveðnum ólestri. Námið tilheyri engu skólastigi og að litlar sem engar kröfur séu gerðar til þeirra sem annist kennslu ráðgjafanna.

„Við förum fram á að það verði sett námskrá fyrir þetta nám og að það heyri undir ákveðið skólastig. Helst viljum við fá þetta innan heilbrigðissviðs háskólans,“ segir Guðrún. Hún segir að meðferðarkerfið á Íslandi sé borið upp af fólki sem ekki sé í raun og veru menntað til að starfa innan heilbrigðisgeirans. „Okkur finnst mikilvægt að á meðan við skilgreinum áfengis- og fíknisjúkdóma sem sjúkdóma að þá eigi að fara með þá sem slíka. Það þarf því að setja skýrari ramma utan um þetta.“

Víða í heiminum er meirihluti ráðgjafa með BA/BS-gráðu eða meiri menntun, þetta á við  um 71% meðferðaraðila samkvæmt rannsókn sem gerð var í Norðvesturríkjum Bandaríkjanna árið 2000. Á Íslandi er því hins vegar þannig farið að menntun ráðgjafa er ekki einu sinni hluti af hinu formlega skólakerfi og engin námskrá er til í faginu

Í ljósi þess að um 80% kvenna sem fara í meðferð hafa orðið fyrir ofbeldi telur Rótin einsýnt að sú alvarlega staðreynd verði höfð til hliðsjónar við endurskoðun ráðgjafanámsins og við námskrárgerð í faginu. Þá er tímabært að boðið sé upp á fullt nám í fíknifræðum við háskóla hér á landi með tilheyrandi rannsóknarstarfi í faginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×