Námsmenn mótmæla sýknun Mubaraks Guðsteinn Bjarnason skrifar 1. desember 2014 09:15 Þrátt fyrir strangar reglur og hættu á fangelsun mættu hundruð námsmanna til þess að mótmæla sýknun Mubaraks í gær. fréttablaðið/AP
Nokkur hundruð námsmanna komu saman fyrir utan háskólann í Kaíró í gær til að mótmæla sýknun Hosni Mubaraks, sem steypt var af stóli snemma árs 2011. Stúdentar efndu einnig til mótmæla í fleiri borgum landsins. Dómstóll í Kaíró sýknaði Mubarak á laugardaginn af ákærum í tengslum við uppreisnina gegn honum árið 2011. Hann var, ásamt félögum sínum í þáverandi herforingjastjórn landsins, sakaður um að hafa skipað skipað öryggissveitum sínum að beita valdi, sem varð til þess að fjöldi mótmælenda lét lífið. Strangt til tekið sýknaði dómstóllinn reyndar ekki Mubarak, heldur vísaði ákærunni frá af tæknilegum ástæðum. Hins vegar var yfirmaður öryggissveitanna og sex aðrir yfirmenn sýknaðir af allri ábyrgð á dauðsföllunum. Þessi úrskurður felur í reynd í sér að Mubarak geti ekki verið sekur. Mubarak var í maí síðastliðnum dæmdur í þriggja ára fangelsi vegna spillingarmála. Óvíst er hvort hann þarf að afplána þann dóm frekar, þar sem hann hefur nú þegar verið í haldi í þrjú ár. Um það bil 170 aðrir yfirmenn lögreglu og öryggissveita hafa verið sýknaðir af ákærum tengdum láti mótmælendanna. Þetta gerðist þrátt fyrir að fjöldi myndbanda sé til, sem sýna greinilega lögreglumenn skjóta á mótmælendur, aka yfir þá og misþyrma þeim með barsmíðum.
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Sagðir hafa fundið um 1.500 skilaboð milli Þorsteins og Jóhannesar Innlent Ítrekuð brot gegn grunnskólastúlku nauðgun eftir allt saman Innlent Fá að leita í innrituðum farangri farþega að þeim fjarstöddum Innlent Vandræðalegur starfsmaður rak Björn Leví burt frá vínbúðinni Innlent Helgi hættur á Heimildinni Innlent Sendur í leyfi Innlent Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Erlent Örn í sex ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps Innlent Halla Hrund gengin til liðs við Framsókn og tekur sæti formannsins Innlent Fleiri fréttir Heita hertum reglum í hælisleitendamálum Ætlar ekki að leyfa Úkraínu að eignast kjarnorkuvopn Bar fram samsæriskenningar á fyrsta kosningafundinum Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Kim sagður ætla að senda tólf þúsund menn til Rússlands Telja árásir sænskra unglinga runnar undan rifjum Írana Hafa birt myndskeið af síðustu augnablikum Sinwar Dauði Sinwar tækifæri til að binda enda á stríðið Fall Sinwar „upphafið að endinum“ Staðfesta andlát leiðtoga Hamas Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur „Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Mætti á Fox í gær og á í viðræðum um viðtal við Rogan Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Banna Ítölum að finna staðgöngumæður erlendis Hundrað ára Carter búinn að kjósa Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Saka yfirvöld í Indlandi um ofbeldi og morð í Kanada Fyrrum Stasímaður dæmdur fyrir fimmtíu ára gamalt morð Taugaeitur til að drepa þúsundir manna skilið eftir á glámbekk Sjá meira