Íslenski boltinn

Uppbótartíminn: Óli kvaddur og fermingartreyjan hans Gunnleifs

Elfar Freyr Helgason og Ólafur Karl Finsen stíga dans í leik Breiðabliks og Stjörnunnar.
Elfar Freyr Helgason og Ólafur Karl Finsen stíga dans í leik Breiðabliks og Stjörnunnar. Vísir/Stefán
Sjötta umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu kláraðist í gær. Hverjir áttu góðan dag og hverjir áttu erfiðan dag? Hvað segir tölfræðin og hver var umræðan á Twitter? Vísir gerir hér upp umferðina á léttum nótum.

FH er eitt á toppnum eftir umferðina en það vann nýliða Víkings, 1-0. Stjarnan gerði jafntefli við Breiðablik en er enn taplaus líkt og Fjölnismenn. ÍBV er sem fyrr á botninum án sigur og þar fyrir ofan eru Blikar sem hafa heldur ekki unnið leik í fyrstu sex umferðunum.

Umfjöllun og viðtöl úr öllum sex leikjum umferðarinnar:

Keflavík - Fjölnir

Valur - Fylkir

FH - Víkingur

Breiðablik - Stjarnan

KR - Fram

Þór - ÍBV

Veigar Páll spilaði frábærlega á móti Blikum.Vísir/Stefán
Góð umferð fyrir ...

... Magnús Gylfason, þjálfara Vals

Það var gríðarlega mikilvægt fyrir Magnús og lærisveina hans að klára Fylki. Þetta eru leikirnir sem liðið missti niður í jafntefli í fyrra. Þá var líka mikilvægt að vinna tvo heimaleiki í röð en það hafði liðið ekki gert síðan í júlí árið 2012! Þetta eru leikirnir sem Valsmenn þurfa að vinna ætli þeir sér eitthvað meira en meðalmennsku.

... Veigar Pál Gunnarsson, Stjörnunni

Það er kannski of mikið að segja að Veigar hafi átt mark Stjörnunnar með húð og hári þar sem Vemmelund átti nú alveg eftir að gera slatta þegar hann fékk boltann. En það hlýtur að vera rosalega gott fyrir Veigar að spila loksins jafnvel og hann getur og fá jákvæða umfjöllun. Ekki alltaf þetta endalausa: „Hann getur meira.“ Meira að segja skærustu stjörnur deildarinnar þurfa stundum klapp á bakið.

... Varnarmenn FH

Ekki er boðið upp á leiftrandi sóknarbolta og mörk hjá FH-liðinu eins og undanfarinn áratug. Það treystir nú á sterkan varnarleik og mörk frá Atla Viðari Björnssyni. FH er aðeins búið að fá á sig tvö mörk í fyrstu sex umferðunum og hélt hreinu í fjórða sinn í sumar gegn nýliðum Víkings. Kassim Doumbia var virkilega flottur og var valinn maður leiksins.

Ólafur kvaddi í gær.Vísir/Stefán
Erfið umferð fyrir ...

... Dean Martin, ÍBV

Þegar liði gengur jafnilla og ÍBV í Pepsi-deildinni er óboðlegt að 42 ára gamall spilandi aðstoðarþjálfari liðsins láti reka sig af velli fyrir olnbogaskot. Vandræðin eru næg fyrir hjá Sigga Ragga og lærisveinum hans. Það þarf ekki að bæta við þau með svona atvikum.

... Stuðningsmenn Breiðabliks

Blikar þurftu að kveðja þjálfara sinn til átta ára, Ólaf Kristjánsson, eftir jafnteflið gegn Stjörnunni í gær. Ólafur hefur lyft grettistaki hjá Breiðabliki og gert liðið að einum af þeim stóru í Pepsi-deildinni og auðvitað unnið tvo stóra titla. Þó allir Blikar óski honum að sjálfsögðu velfernaðar í nýju starfi er erfitt fyrir þá að sjá á eftir honum, sérstaklega miðað við stöðuna sem liðið er í núna.

FH vann Víking, 1-0.Vísir/Vilhelm
Tölfræðin:

*FH-liðið er fyrsta liðið í níu ár sem fær aðeins á sig tvö mörk í fyrstu sex leikjunum eða síðan FH fékk aðeins tvö mörk á sig í fyrstu sex leikjunum sumarið 2005. FH-ingar hafa fimm sinnum áður fengið á sig fæst mörk í fyrstu sex umferðum tímabilsins og í öll skiptin hafa þeir orðið Íslandsmeistari um haustið. Þetta eru sumrin 2012, 2008, 2007, 2006 og 2005.

*FH-ingar hafa klikkað á síðustu fjórum vítaspyrnum sínum í Pepsi-deild karla og hafa ekki skorað úr vítaspyrnu í deildinni í rúm tvö ár. Björn Daníel Sverrisson skoraði síðastur FH-inga úr víti í maí 2012 en hefur síðan sjálfur klikkað tvisvar eins og þeir Davíð Þór Viðarsson og Ingimundur Níels í fyrrakvöld.

*Keflvíkingar eru búnir að tapa fimm stigum á síðustu sjö mínútunum í síðustu þremur leikjum sínum í Pepsi-deildinni sem fóru allir fram á Nettóvellinum í Keflavík. Keflavík hefur fengið á sig fjögur mörk í Pepsi-deildinni í sumar en þau hafa öll komið á 83. mínútu eða síðar. Keflvíkingar hafa sjálfir ekki skorað eftir 81. mínútu og væru með sextán stig (af 18 mögulegum) ef að leikirnir hefðu verið flautaðir af á 82. mínútu.

*Þórsarar hafa skorað 5 af 11 mörkum sínum í Pepsi-deildinni í sumar þegar liðið er manni fleiri á vellinum. Þórsliðið hefur verið manni fleiri í 109 mínútur af þeim síðustu 154 í leikjum liðsins í Pepsi-deildinni.

*KR-ingurinn Kjartan Henry Finnbogason var búinn að skora úr ellefu fyrstu vítaspyrnum sínum í úrvalsdeild karla þegar hann lét Ögmund Kristinsson, markvörð Framara, verja frá sér víti. Kjartan Henry náði hinsvegar frákastinu og skoraði sigurmark KR-liðsins.

Aron Elís Þrándarson frískaði upp á sóknarleik Víkinga án árangurs.Vísir/Vilhelm
Skemmtilegir punktar úr boltavaktinni:

Daníel Rúnarsson á Kópavogsvellinum:

„Guðmundur Benediktsson stýrir upphitun blika og raðar saman keilum úti á vellinum. Það er þó líklega í síðasta skiptið þetta tímabilið enda ekki aðalþjálfara siður að standa í slíku. Það verður hinsvegar áhugavert að sjá hvort alþingismaðurinn Willum Þór Þórsson, sem verður Guðmundi til aðstoðar, taki að sér yfirumsjón með keilunum.“    

Andri Valur Ívarsson á KR-vellinum:

„Í blaðamannastúkunni er því spáð að víti verði dæmt í leiknum. Sjáum hvað setur.“ (Víti var svo dæmt)

Anton Ingi Leifsson á Vodafonevellinum:

„Einn af okkar allra efnilegustu dómurum dæmir leikinn í kvöld. Hann starfar einnig sem leiðbeinandi í Ungmennabúðunum á Laugum og fara almennt mjög góðar sögur af Ívari þaðan. Vonandi vegnar honum vel í kvöld.“

Ingvi Þór Sæmundsson í Kaplakrika:

„Agnar Darri Sverrisson átti marktilraun framhjá  -  Fyrsta skot Víkinga í leiknum. Á 48. mínútu. Þetta er ekki grín.“    

Hæstu og lægstu einkunnir umferðarinnar:

Viktor Bjarki Arnarsson, Fram - 8

Ósvald Jarl Traustason, Fram - 8

Haukur Heiðar Hauksson, KR - 8

Kassim Doumbia, FH - 8

Ingvar Þór Kale, Víkingi - 8

Halldór Kristinn Halldórsson, Keflavík - 8

Andrew Sousa, Fylki - 3

Dean Martin, ÍBV - 3

Olgeir Sigurgeirsson, Breiðabliki - 4

Jeppe Hansen, Stjörnunni - 4

Oddur Ingi Guðmundsson, Fylki - 4

Ryan Maduro, Fylki - 4

Hákon Ingi Jónsson, Fylki - 4

Ólafur Páll Snorrason, FH - 4

Arnþór Ingi Kristinsson, Víkingi - 4

Todor Hristov, Víkingi - 4

Magnús Sverrir Þorsteinsson, Keflavík - 4

Umræðan á Twitter #pepsi365

Flottasta markið: Nicklas Vemmlund, Stjörnunni Öll mörkin úr 6. umferðinni: Pepsi-mörkin kvöddu Óla Kristjáns með broti af því besta:

Tengdar fréttir

Ögmundur: Fannst þetta ekki vera víti

KR skellti Fram í kvöld en sigurmarkið kom eftir umdeilda vítaspyrnu. Markvörður Fram, Ögmundur Kristinsson, var þá dæmdur brotlegur er hann fór á eftir Þorsteini Má Ragnarssyni.

Ólafur: Eins og hver annar leikdagur

Ólafur Kristjánsson fær eitt tækifæri til viðbótar til að vinna deildarleik með Breiðablik í sumar áður en hann yfirgefur félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×