Umfjöllun, viðtöl, einkunnir og myndir: Valur - Víkingur 1-2 | Annar sigur Víkinga í röð Ingvi Þór Sæmundsson á Vodafone-vellinum skrifar 15. júní 2014 00:01 Víkingar fagna. Vísir/Stefán
Víkingar fögnuðu sínum öðrum sigri í röð þegar þeir báru sigurorð af Val á útivelli með tveimur mörkum gegn einu. Leikurinn á Vodafone-vellinum í kvöld staðfesti það sem flestir vissu: að Aron Elís Þrándarson er frábær í fótbolta - leikmaður sem skilur á milli í jöfnum leikjum eins og þessum. Hann er ofsboðslega klár í að finna sér pláss milli varnar og miðju mótherjanna, á mjög auðvelt með að fara framhjá varnarmönnum og það er mikil skotógn af honum. Aron er mjög beittur sóknarleikmaður og ef hann sleppur við meiðslin sem hafa plagað hann síðustu ár getur hann náð virkilega langt. Leikurinn var ágætlega spilaður og bæði liðin héldu boltanum vel. Það dró til tíðinda á 28. mínútu þegar Iain Williamson kom Val yfir með skoti úr vítateignum eftir innkast Sigurðar Egils Lárussonar og skalla Hauks Páls Sigurðssonar. En aðeins mínútu seinna jafnaði Aron Elís leikinn með góðu skoti rétt fyrir utan vítateig eftir að hafa leikið laglega á Williamson. Það gerðist fátt næstu mínúturnar og stöðubaráttan var ríkjandi. En á lokamínútu fyrri hálfleiks var Aron Elís nálægt að endurtaka leikinn frá því í jöfnunarmarkinu. Hann lék þá á Hauk Pál og Bjarna Ólaf Eiríksson, sem lék sem miðvörður í kvöld, en skaut framhjá markinu frá vítapunkti. Staðan í hálfleik var 1-1. Seinni hálfleikurinn var rólegur í meira lagi. Valsmenn náðu að loka betur á Aron Elís og voru heldur sterkari aðilinn án þess þó að skapa sér mörg opin færi. Haukur Páll komst næst því skora fyrir Valsmenn; fyrst þegar hann átti bakfallsspyrnu beint á Ingvar Þór Kale og svo þegar hann átti af fjærstönginni sem Ingvar varði vel. Aron Elís hafði, sem áður sagði, haft hægt um sig í seinni hálfleik en þegar sjö mínútur voru til leiksloka lét hann aftur til sín taka. Hann átti þá frábæran sprett, komst upp að endamörkum vinstra megin í vítateignum, sendi boltann fyrir og eftir klafs fór boltinn af varamanninum Henry Monaghan og í netið. Valsmenn bættu í sóknina eftir markið og Ingvar þurfti að taka á honum stóra sínum þegar hann varði skalla Hauks Páls frábærlega. Heimamenn skildu hins vegar mikið pláss eftir aftarlega á vellinum á lokamínútunum og Aron Elís komst í tvígang nálægt því að skora, en Fjalar Þorgeirsson, markvörður Vals, sá við honum. Fleiri urðu mörkin hins vegar ekki og Víkingar fögnuðu góðum sigri sem þeir unnu svo sannarlega fyrir. Liðsheildin var sterk og þeirra lykilmenn, Aron Elís, Ingvar, Igor Taskovic og Alan Löwing, áttu allir afbragðs leik. Valsmenn hljóta að vera fúlir með niðurstöðuna, enda getur það varla talist ásættanlegt fyrir lið sem ætlar sér a.m.k. að komast í Evrópukeppni að tapa á heimavelli fyrir nýliðum. Markaskorarinn Williamson átti góðan fyrri hálfleik en það dró af honum eftir því sem á leikinn leið. Þá átti Bjarni Ólafur flottan leik í miðvarðarstöðunni. Víkingar eru nú í 5. sæti með 13 stig, einu stigi meira en Valur sem situr í sætinu fyrir neðan.Magnús: Vantaði þetta extra "Þetta er grátleg niðurstaða. Við erum, að mér finnst, búnir að vera á fínu róli í þessu móti, en við höfum ekki komist á almennilegt skrið," sagði Magnús Gylfason, þjálfari Vals eftir tapið gegn Víkingi í kvöld. "Það var grátlegt að tapa hérna á heimavelli í nokkuð jöfnum leik, þar sem við höfðum kannski yfirhöndina, en það vantaði eitthvað upp á," sagði Magnús en honum fannst vanta smá meiri kraft í leik sinna manna. "Við komum ákveðnari út í seinni hálfleikinn fannst mér og við sköpuðum okkur 2-3 hálffæri, en það vantaði þetta extra, þetta mark til að komast yfir. "Það var líka klaufalegt hjá okkur að fá strax á sig mark eftir að hafa komist yfir í fyrri hálfleik. Það var niðurdrepandi að fá á sig mark nánast á sömu mínútunni. "Mér fannst Víkingar ekki vera að valda okkur neinum stórvægilegum vandræðum en meðan staðan er 1-1 er stórhættulegt að fara með of marga menn fram í sóknina og við fengum að kenna á því í dag," sagði Magnús að lokum.Ólafur: Höfum oft spilað betur Ólafur Þórðarson, þjálfari Víkinga, kvaðst stoltur af sínum mönnum í kvöld. "Já, það er ég. Við höfum oft spilað betur, en við höfum aldrei fengið fleiri stig fyrir sigur. Við náðum að klára leikinn og það var gott," sagði Ólafur en Víkingar eru nú búnir að vinna tvo leiki í röð í Pepsi-deildinni. "Eins og ég sagði vorum við ekki að spila vel í dag, en við náðum að landa þessum sigri á karakter. Ég vona að við finnum aftur fjölina okkar, en ég var sáttur með karakterinn í dag. "Varnarleikurinn var heilt yfir mjög sterkur, en við gerum smá mistök í markinu. Valsmenn eru með gæðaleikmenn sem refsa og þeir gerðu það svo sannarlega í kvöld, en við náðum sem betur fer að svara strax fyrir okkur og klára svo leikinn í lokin." Ólafur var einnig sáttur með frammistöðu Arons Elísar Þrándarsonar sem skoraði fyrra mark Víkinga í kvöld og lagði upp það síðara. "Hann komst líka einn í gegn og ef hann hefði verið aðeins fljótari að hlaupa hefði hann sett eitt í viðbót. Við vonum að það komi með betra formi," sagði Ólafur léttur að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sprungu úr hlátri þegar stóllinn hans Alberts gaf sig: „Ragnar Reykás er mættur“ Fótbolti Úkraínski heimsmeistarinn handtekinn á flugvelli Sport Ný sönnunargögn gætu hjálpað Chiles að endurheimta bronsið Sport Salvatore Schillaci látinn Fótbolti Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Körfubolti Muna vel leikinn við Liverpool fyrir 60 árum Fótbolti „Mér finnst að allar þessar krúsídúllur eigi að bíða“ Íslenski boltinn Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Körfubolti Sjáðu öll mörkin og fáránlegan leikaraskap Rüdigers Fótbolti Fór ekki til Atlético Madrid vegna afskipta mömmunnar Fótbolti Fleiri fréttir „Mér finnst að allar þessar krúsídúllur eigi að bíða“ Þóra vonar að Tinna finni sér annað lið: „Kæmi mér á óvart ef það yrði ekki slegist um hana“ Flestir mæta á heimaleiki Blika Sjáðu heimsókn Nabblans á Meistaravelli Svona raðast leikirnir í Bestu deild karla Björn Daníel brattur: „Ætli þetta sé ekki hrörnun vöðvanna sökum aldurs?“ Sjáðu mörkin úr stórsigrum Vals og Víkings Rifjuðu upp þegar Gummi spurði strákana eftir tvær umferðir hvort KR gæti orðið meistari Lárus Orri ekki enn búinn að fyrirgefa Graham Potter: „Hann var svolítið linur“ Rúnar Páll: Fáránlega mikið af mörkum á okkur sem boðar ekki gott Aron: Að það þurfi tæklingu til þess að kveikja á liðinu finnst mér lélegt „Þetta er fokking Valur-KR og ef menn fá ekki að kljást í þeim leik þá er eitthvað að“ Arnar: Hleyptum þeim sjaldan úr skotgröfunum Uppgjörið: Valur - KR 4-1 | Valsarar sleppa ekki takinu á Vesturbæingum Uppgjörið: Fylkir - Víkingur- 0-6 | Miskunnarlausir Víkingar á toppnum Laus við veikindin og klár í slaginn Sjáðu markaflóðið úr Bestu deild karla í gær „Það er ekki öllum sem finnst þetta skemmtilegt“ „Gífurlega svekkjandi augnablik“ „Held það vilji það allir sem fylgjast með boltanum“ Uppgjörið: Breiðablik - HK 5-3 | Blikar völtuðu yfir nágrannana í síðari hálfleik Heimir: Þetta víti var brandari Davíð Smári: Ekkert verra en að fá þetta í andlitið Uppgjörið: Fram - FH 3-3 | Fram náði stigi í lokin í markaleik á móti FH Jökull: „Gátum verið þakklátir fyrir 0-0 í hálfleik“ Uppgjörið: Stjarnan - Vestri 1-0 | Emil bjargaði Stjörnunni í bragðdaufum leik Uppgjörið: ÍA - KA 1-0 | Fyrsta mark Rúnars Más tryggði Skagamönnum sigur Sérstakir leikir sama hvað er undir: „Alltaf smá auka fiðringur“ Hvorki bestir á heimavelli né á útivelli en unnu samt deildina Lang markahæstur í 2. deildinni: „Var þetta nokkurn tímann spurning?“ Sjá meira