Innlent

Enginn fullur á Samfés

Snærós Sindradóttir skrifar
Myndin er tekin á Samfestingnum árið 2012
Myndin er tekin á Samfestingnum árið 2012 VÍSIR/Anton Brink
Búist er við 4500 ungmennum á tónleika Samfés, Samfestinginn, í Laugardalshöll í kvöld. Hátt í 400 starfsmenn munu fylgja ungmennunum til að tryggja að allt fari vel fram.

Páll Óskar mun tryggja stuð í höllinni auk þess sem hljómsveitin Retro Stefson mun leika fyrir dansi. 

„Það er bara mjög góð stemning“ segir bassaleikari Retro Stefson, Logi Pedro Stefánsson. „Fyrstu tónleikar Retro Stefson fyrir utan Austurbæjarskóla voru á Samfés.“ Þetta er í annað sinn sem hljómsveitin spilar á tónleikunum. 

Retro Stefson leika fyrir dansi. Samkvæmt Loga Pedro, bassaleikara hljómsveitarinnar, er mikil stemning fyrir kvöldinu.VÍSIR/Magnús Andersen
Engin unglingadrykkja

Björg Jónsdóttir, framkvæmdastýra Samfés, segir að síðustu ár hafi gengið áfallalaust fyrir sig. Samfestingurinn er áfengis og tóbakslaus samkoma og þau skilaboð hafa komist rækilega til skila til ungmennanna

„Það hefur ekki komið upp eitt einasta tilvik síðastliðin 4 eða 5 ár“ segir Björg og bætir við „Unglingar eru svo frábærir.“



Ekki reglur heldur viðmið um klæðaburð

Reglur um klæðaburð hafa jafnan vakið athygli og sitt sýnist hverjum. Ekki má klæðast of flegnu og ef pilsfaldurinn er fyrir ofan hné skal vera í þekjandi sokkabuxum undir.

„Foreldrar hafa verið þakklátir fyrir þessi viðmið“ segir Björg „Með því að vera með svona viðmið erum við að kalla eftir því að starfsfólk, foreldrar og unglingar ræði saman um ákveðna hluti.“

Páll Óskar heldur uppi stuðinu langt fram á kvöldVISIR/Vilhelm
Björg segir að þessar reglur hafi ekki ollið vandræðum á Samfestingnum sjálfum „Það hafa kannski komið eitt eða tvö atvik sem hafa verið á gráu svæði.“

Öll mál eru þó leyst með hagsmuni unglinganna að leiðarljósi „Við myndum aldrei henda neinum út eða senda neinn heim, við bara leysum þessi mál.“

Stemning hjá unglingum í Vesturbæ

Félagsmiðstöðin Frosti í Vesturbæ mætir á ballið með 86 ungmenni. Ásta Lára Jónsdóttir, verkefnastýra hjá Frosta segir að mikil stemning ríki á meðal ungmennanna.

„Unglingarnir á Íslandi eru til fyrirmyndar þegar kemur að svona hátíð. Þetta er stærsta unglingahátíð sem er haldin á landinu og aldrei neitt stórvægilegt sem kemur upp. Það verður bara stuð og stemning.“

Söngkeppnin Samfés fer fram á morgun og hefst klukkan 13. Keppnin verður í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Popp Tíví og hér á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×