Handbolti

Aron rotaði Rússana

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Strákarnir fagna sigurmarki Arons Pálmarssonar í gær en það var af glæsilegri gerðinni.
Strákarnir fagna sigurmarki Arons Pálmarssonar í gær en það var af glæsilegri gerðinni. nordicphotos/bongarts
Aron Pálmarsson skoraði tvö mörk á síðustu 40 sekúndum leiksins gegn Rússum í gær og tryggði Íslandi eins marks sigur í leiknum, 35-34. Bæði mörkin voru stórglæsileg og sigur íslenska liðsins sanngjarn en liðið leiddi lengstum.

Þetta var fyrsti leikur þjóðanna á fjögurra þjóða æfingamóti fyrir EM sem hefst um næstu helgi. Ísland spilar við Austurríki klukkan 14.00 í dag og við Þjóðverja klukkan 15.15 á morgun. Báðir leikir verða í beinni textalýsingu á Vísi.

„Þetta var heldur betur spennandi og mjög gott að klára þetta. Tala nú ekki um það sem á undan er gengið. Þetta var mjög sterkur sigur,“ sagði landsliðsþjálfarinn, Aron Kristjánsson, eftir leik.

Hann hefur mátt horfa á eftir hverjum leikmanninum á fætur öðrum í meiðsli og nú síðast meiddist Snorri Steinn Guðjónsson. Hann er þó ekki alvarlega meiddur og gæti spilað í dag.

Sóknarleikur íslenska liðsins var til fyrirmyndar í leiknum en varnarleikur og markvarsla var langt frá því að vera í lagi.

„Hafsentarnir Sverre og Vignir ganga ekki alveg heilir til skógar og Bjarki Már er reynslulítill. Við erum því að reyna að púsla saman varnarleiknum og þá fáum við líka vonandi betri markvörslu,“ segir Aron en Björgvin Páll steig þó upp á ögurstundu í gær og varði skot undir lokin sem reyndist ansi dýrmætt.

„Hraðaupphlaupin og hvernig við spilum sóknina manni færri kom mjög vel út sem var afar jákvætt. Sóknin rúllaði líka mjög vel. Ásgeir og Rúnar komu mjög sterkir inn í fyrri hálfleik með átta mörk hægra megin en ég hefði viljað sjá meira frá þeim í síðari hálfleik. Þetta eru tveir ólíkir menn og gott að vera með slíka tvennu.“

Þjálfarinn segir að tíminn fram að EM muni fara að miklu leyti í varnarleikinn.

„Það er áhyggjuefnið okkar núna. Við erum viðkvæmir á miðsvæðinu. Sverre hefur ekkert æft og var bara að koma inn núna. Sem betur fer kom ekkert upp í þessum leik og allir heilir sem spiluðu. Við verðum samt að passa vel upp á Aron um helgina en hann spilaði mikið núna.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×